Aðstaðan okkar

Höfuðstöðvar okkar Drumboddsstaðir

Drumboddsstaðir eru upphafsstaður allra okkar ferða og heimili flúðaleiðsögumanna okkar. Drumbó er staðsett á Suðurlandi, nálægt Reykholt og Gullfossi í um 1,5 klukkustunda fjarlægð akandi frá Reykjavík. Segja má að Drumbó sé í staðsett í aðalvatnskerfi Íslands, en allt í kringum okkur rennur vatn. Gullfoss hrapar kröftuglega niður í Hvítá og þar nokkrum kílómetrum neðar hefst siglingin okkar. Enn neðar sameinast Hvítá Soginu sem skapar Ölfur, vatnsmestu á Íslands.

Ástæðan fyrir öllu þessu vatni er að mestu leyti jöklarnir Langjökull og Hofsjöklull. Vatnið í Hvítá kemur mest frá Langjökli, en er það ein af ástæðunum (þó kannski ekki eina) fyrir því að við röftum ekki á veturna. Jökullinn þarf að bráðna til þess að vatnsmagnið í ánni hækki, og því bíðum við vorleysinga. Það er mun skemmtilegra að hafa mikið vatn þegar flúðasiglingar eru annars vegar. Okkur þykir Drumbó og Ísland vera æðislegur staður til þess að búa á sem straumvatnsfólk, en við fáum staðfestingu þess efnis að ári hverju þegar heimsfrægir kayakræðarar koma hér frá öllum heimshornum til þess að upplifa árnar hér með öllum sínum epísku fossum.

 
rafting-gullfoss-river-iceland18.jpg
 

Veitingastaður

Við erum stolt af því að vera með huggulegan og hlýjan veitingastað sem býður uppá einfalda gómsæta rétti gerða úr ferskum hráefnum úr sveitinni auk frábærs úrvals bjórs á krana og í flösku. Mögulegt er að sitja inni og úti. 

 
River-Raftin-Base-Iceland+%284%29.jpg

Sána og sturtur

Við erum með sánu fyrir gestina okkar. Mjög mjög gott. Fullkomin aðferð til þess að hlýja sér eftir kalda á. Drumbó er einnig með sturtu auk búningsklefa.


.