Vatna ofsi - Þriggja daga rafting á Austari Jökulsá í Skagafirði
Erfiðleikastig 4+ af 5 mögulegum - Fullt af fjöri og mjög krefjandi
Óumdeilanlega flottasta flúðasiglingin sem Ísland hefur uppá að bjóða og rjóminn af flúðasiglingum Arctic Rafting.
Ævintýrið hefst á notalegum akstri frá Reykjavík eða Akureyri til Varmahlíðar fyrir norðan í Skagafirði. Þaðan förum við af malbikinu á fjallveg i átt að Sprengisandi, ökum svo í átt að hinni víðfrægu Austari Jökulsá við Hofsjökul. Fyrstu nóttinni eyðum við í notalegheitum í skálunum í Laugafelli, þar sem við getum legið og slakað á í heitum laugum og notið miðnætursólarinnar umkringd fegurð hálendissins. Morguninn eftir dembum við okkur í adrenalín pakkaða tveggja daga flúðasiglingu í gegnum allar siglanlegar flúðir bestu flúðasiglingarár Íslands. Á meðan á ferðinni stendur kemur þú til með að uppgötva að þér hafi verið sökkt inn í afskekta og óspillta náttúruna sem ekki væri hægt að nálgast öðruvísi en á bát. Það eina sem kemur til með að blússa hærra en öldurnar í ánni er adrenalínið í blóðinu þegar við dúndrum á flúðir Jökulsár Austari. Ýkjulaust, átt þú eftir að öskra úr þér lungun í "Screaming lady", vera orðlaus í "Lost", biðja um miskun í "Græna herberginu" og stíga inn í óttann í 8 metra háu kletta stökki í ána (ekki skylda og fer eftir aðstæðum í ánni). Við náum okkur svo niður úr adrenalín vímunni með því að fljóta og synda niður með ljúfum straumum ármóta Jökulsár Austari og Vestari þar til við erum komin í grend við höfuðstöðvarnar okkar á Hafgrímsstöðum.
Eins og sést er það ekki eins og að drekka vatn að bjóða Jökulsá Austari birginn, en þið vinnið ykkur inn montrétt að ógleymdri óendanlegri skemmtuninni sem kemur til með að dvelja í huga ykkar að eilífu! Svo ljúkum við ferðinni með kveðjupartíi, grilli og afslöppun í heitum pottum.
Við mælum með að þátttakendur hafi einhverja reynslu af flúðasiglingum eða mikinn eldmóð fyrir ævintýrum!
Öruggar brottfarir: Alla þriðjudaga frá 26. júní - 28. ágúst fyrir að minnsta kosti 4 þátttakendur. Frá 1. september - 10. september fyrir minnst 8 þátttakendur.
Smáatriði:
Verð: 69.990 kr án aksturs, hittingur kl 13:00 í Varmahlíð eða 13:30 á Hafgrímsstöðum.
Verð: 76.990 kr á manninn með rútu frá Akureyri.
Verð: 89.990 kr á manninn með rútu frá Reykjavík.
Innifalið: tveggja daga rafting niður Jökulsá Austari, matur í 3 daga (nema morgun- og hádegismatur á degi 1), tvær nætur í svefnpokaplássi í skálum á hálendinu, aðgangur að heitum pottum og stútfullur hugur af góðum minningum!
Frá Reykjavík:
Hægt að bóka akstur alla þriðjudaga frá 26. júní til 28. ágúst klukkan 8:30 frá BSÍ rútustöðinni. Vinsamlegast mætið 20 mínútum fyrir brottför. Tími aksturs: 4 klukkustundir. Koma til Reykjavíkur er áætluð klukkan 23:10 að kvöldi þriðja dags.
Frá Akureyri:
Hægt að bóka akstur alla þriðjudaga frá 26. júní til 28. ágúst klukkan 8:30 frá Sterna rútustöðinni. Vinsamlegast mætið 20 mínútum fyrir brottför. Tími aksturs: 1 klukkustund. Koma til Akureyri er áætluð klukkan 22:50 að kvöldi þriðja dags.
Vegalengd frá Reykjavík: 294 km, 3,5 klst í keyrslu.
Lengd ferðar: Þrír heilir dagar.
Lágmarks þátttaka: minnst 4 manns alla þriðjudaga frá 26. júní til 28. ágúst. Minnst 8 manns frá 1. september til 10. september. Hámarks þátttaka: 24 manns.
Aldurstakmark: 18 ára.
Takið með: sjá hér að neðan.
Vinsamalegast hringið eða sendið okkur tölvupóst til þess að athuga hvort þið getið bæst inn í ferðir!
Klikkið hér til þess að fá nánari útlistingar á afbókunarstefnu okkar
Útbúnaðarlisti:
· Fatnaður fyrir ána: Hlý, létt, undirföt (föðurland) úr ull eða flís (alls ekki bómull), hlýjar buxur, hlý peysa úr ull eða flís, þykkir hlýjir ullarsokkar.
· Fatnaður fyrir skála: Hlý og þægileg föt, vatnsheldur jakki og gönguskór.
· 3 pör af aukasokkum
· Svefnpoki
· Snyrtivörur (tannbursti, tannkrem o.s.frv)
· Öll einstaklingsbundin lyf (asthma púst, o.s.frv)
· Sundföt og handklæði fyrir laugar og potta.
· Vatnsheld myndavel (val, en við mælum með því)
* Vinsamlegast hafið í huga að á meðan við erum í siglingu er öllum perónulegum búnaði pakkað í plast- og þurrpoka og sett um borð í bátana sem siglt er á. Við getum ekki ábyrgst öryggi eiga ykkar um borð og hvetjum ykkur því til þess að taka ekki verðmæta hluti að óþörfu með í ferðina. Vegna plássleysis um borð hvetjum við þátttakendur einnig til þess að taka ekki of óþarfa farangur með í ferð.
Nákvæmari ferðalýsing:
Dagur 1:
Brottför kl. 8:30 frá BSÍ í Reykjavík eða Sterna á Akureyri, það er rúta til Varmahlíðar. Í Varmahlíð stígið þið út úr rútunni (4 klst frá Reykjavík og 1 klst frá Akureyri), við sækjum ykkur frá Varmahlíð og ökum 15 km til Hafgrímsstaða. Þar hittið þið leiðsögumennina og aðra bátsfélaga ferðarinnar og förum yfir dagskrá ferðarinnar. Á Hafgrímsstöðum mátum við gallana og allan nauðsynlegan búnað fyrir ferðina, við útvegum ykkur einnig þurrpoka fyrir perónulegar eigur. Þegar búið er að sjá til þess að allir séu rétt búnir fyrir ferðina leggjum við í leiðangurinn! Næstu 4 klst. ökum við á fjallvegi inn á hálendi Íslands þar sem við komum til með að njóta einstakrar náttúru og útsýnis með glæstan Hofsjökulinn á sjóndeildarhringnum. Þegar við komum að skálunum í Laugarfelli matreiðum við dýrindis máltíð og slökum svo á í náttúrulegum heitum laugum og njótum miðnætursólarinnar. Ljúfur og góður svefn í skálum hálendis Íslands ætti að undirbúa okkur fyrir viðburðaríka daga framundan.
Dagur 2:
Vöknum upp við kaffi ilm og snæðum orkuríkan morgunverð. Þegar við höfum pakkað og gengið frá leggjum við af stað og ökum í um 20 mínútur á grófum fjallvegi þar til við komum að ánni. Á meðan leiðsögumenn afhlaða bílinn, gera bátana og allan nauðsynlegan búnað kláran fer yfir-leiðsögumaðurinn yfir öll helstu öryggisatriði og fer vel yfir það hvernig skuli beita sér í ánni og um borð í bátunum. Þá erum við klár í að skella okkur í ána! Fyrsta klukkutímann fljótum við létt niður með hvítu vatni jökulárinnar. Þennan tíma nýtir leiðsögumaður hvers báts til þess að undirbúa ræðarana til þess að takast á við flúðirnar framundan með nokkrum æfingum þar til leiðsögumaður telur alla um borð vera með á nótunum og tilbúna til þess að róa saman sem eina heild. Þegar að hasarinn hefst er hann nánast linnulaus stærsta hluta dagsins! Halli árinnar eykst skyndilega og þegar þið mætið mjög krefjandi flúðum á erfiðleikastigi 3-4+ af 5 mögulegum er stanslaust átak sem kemur til með að reyna á bæði taugar og vöðva! Eftir um þrjár klukkustundir róast áin og við fáum þá tækifæri til þess að snæða hádegisverð, hvílast aðeins og hlaða batteríin. Um klukkutíma löng slakandi sigling er í næsta náttstað við ána í skála. Þegar í skálann er komið fáum við okkur kvöldmat og eyðum kvöldinu í góðum félagsskap á meðan við segjum hetjusögur af sjálfum okkur eftir daginn og byggjum okkur upp fyrir hamagang morgundagsins.
Dagur 3:
Fyrsti leggur árinnar byrjar með léttri upphitun í gegnum grænan og gróðursælan Austurdalinn. Eftir um klukkutíma tekur landslagið að breytast all snögglega og svakalega. Á meðan við leggjum okkur öll fram við að komast í gegnum neðri hluta gljúfurs Austari Jökulsár komið þið til með að taka eftir augljósum andstæðum í landslagi og flúðum frá deginum á undan. Útsýnið er eitt það besta sem Ísland býður upp á í flúðasiglingum, þar sem áin hefur grafið og myndað 80m djúpt gljúfrið. Næstu 2 tímana má búast við stöðugu adrenalínflæði við það að dúndra í gegnum risa öldur hverja á fætur annarri svo dembum við okkur niður brattar og krefjandi flúðir á erfiðleikastigi 3-4+ af 5 mögulegum. Þegar við erum komin heilu og höldnu í gegnum stærstu flúðirnar tökum við bátana á land og fáum okkur hádegisverð og fleygjum okkur jafnvel ofan af kletti í ána. Þaðan siglum við síðustu kílómetra Austari Jökulsár þar til hún rennur saman við Vestari Jökulsá. Hér er síðasta tækifærið til þess að festa náttúrufegurðina í minninu, slaka á í bátnum eða taka síðustu dýfuna út í ískalda en hressandi jökulána! Þegar til Varmahlíðar er komið tökum við á móti ykkur og verðlaunum ykkur með heitum potti, grillveislu með leiðsögumönnum og bátsmönnum ykkar, vínglasi og jafnvel kveðjupartíi.
Samningsákvæði: Allar flúðasiglingarnar eru farnar á ábyrgð þátttakenda í hana. Arctic Adventures ber ekki á nokkurn hátt ábyrgð vegna slysa sem rekja mega til gáleysis eða grandaleysis þátttakenda eða ekki er hægt að rekja með beinum hætti til stórkostlegs gáleysis eða ásetnings starfsmanna fyrirtækisins. Þátttakendum kann að vera gert að skrifa undir ábyrgðaryfirlýsingu þess efnis, neitun á slíkri undirskrift fyrirgerir þátttakanda rétt til ferðar. Þrátt fyrir að ekki sé sérstaklega undirrituð slík yfirlýsing gildir fyrirvari þessi vegna allra ferða sem bókaðar eru hjá Arctic Adventures. Með kaupum og/eða þátttöku í ferðum á vegum fyrirtækisins hafa þátttakendur staðfest að þeir gera sér grein fyrir þeirri áhættu sem fylgir slíkum ferðum og að þeir eru á eigin ábyrgð.
Click here for English.