Beast of The East - Jökulsá Austari

Sun Mán Þri Mið Fim Fös Lau
300 ISK
Open the calendar popup.
2
13490 ISK
84,12 EUR
114,65 USD
ISK
84,12 EUR
114,65 USD
Karfa
Heildarverð viðskipta 0 ISK
0,00 EUR
0,00 USD
Bookmark and Share

Rafting á Austari Jökulsá

Rafting á Austari Jökulsá í Skagafirði

Erfiðleikastig árinnar er 4+ af 5 mögulegum - Full af fjöri og krefjandi.

Von er á ótrúlegu adrenalín ævintýri í fræknu adrenalín pökkuðu rafting ferðinni okkar á Jökulsá Austari fyrir norðan í Skagafirði. Áin sem er á erfiðleikastigi 4+ af 5 ryður leið sína í gegnum Austurdal sem er þekkt fyrir að vera sérstaklega fallegt og þröngt, siglingin hefur ítrekað verið valin sem eitt það besta sem hægt er að gera á Íslandi, og þá alls ekki af ástæðulausu. Jökulsá Austari gefur einfaldlega af sér bestu reynslu sem hægt er að fá í rafting á Íslandi og þykir ein af bestu siglanlegum á í allri Evrópu!

En athugið að þetta er ekki ferð fyrir fólk með lítið hjarta. Jökulsá Austari tekur á móti þér með kraftmiklum drunum og ógnvekjandi gargi. Það eina sem kemur til með að blússa hærra en öldurnar í ánni er adrenalínið í blóðinu þegar við dúndrum á flúðir Jökulsár Austari.  Ýkjulaust, átt þú eftir að öskra úr þér lungun í "Screaming lady", vera orðlaus í "Lost", biðja um miskun í "Græna herberginu" og stíga inn í óttann í 8 metra há kletta stökki í ána (ekki skylda og fer eftir aðstæðum í ánni).  Við náum okkur svo niður úr adrenalín vímunni með því að fljóta og synda niður með ljúfum straumum ármóta Jökulsár Austari og Vestari þar til við erum komin í grennd við höfuðstöðvar okkar á Hafgrímsstöðum.

Eins og sést er það ekki eins og að drekka vatn að bjóða Jökulsá Austari birginn, en þið vinnið ykkur inn montrétt að ógleymdri óendanlegri skemmtuninni sem kemur til með að dvelja í huga ykkar að eilífu!

Staðfestar brottfarir fyrir minnst 2 þátttakendur frá 1. júní til 31. ágúst og fyrir minnst 4 þátttakendur frá 1. september til 10. september. 

Frá Hafgrímsstöðum í Skagafirði: sunnudaga- föstudaga kl. 13:00. Laugardaga kl. 9:00 og 15:00. 
Athugið: eftir 20.ágúst er ekki hægt að fara í seinni brottför kl 15 á laugardögum vegna birtu, þar sem það ógnar öryggi í ferðinni. 

Frá Varmahlíð í Skagafirði:
 hálftíma fyrir brottfarartíma frá Hafgrímsstöðum. 
Ath, það þarf að panta keyrslu frá Varmahlíð með fyrirvara. 

Frá Akureyri:  sunndaga - föstudaga kl 8:30 frá Sterna rútustöðinni á Hjalteyrargötu 10.

Smellið hér til að lesa um frægu þriggja daga rafting ferðina okkar!

Smáatriði:


Frá Skagafirði (Hafgrímsstöðum eða Varmahlíð): 13.490 kr á mann.
Hægt er að bæta við Víkinga grilli eftir ferðina, grillað lamb með meðlæti: 2.990 ISK (lágmark 4 manns).
 
Frá Akureyri:
Verð með akstri frá Sterna rútustöðinni á Akureyri, flúðasigling, grill eftir siglinguna og akstur til Akureyrar 22.990 kr á mann. Einnig er hægt að bæta við hestaferð fyrir 7.500 kr á mann um morguninn og svo farið í flúðasiglingu kl 13:00.
Ath, þessi ferð er ekki í boði með rútu á laugardögum. 

Vegalengd frá Reykjavík: 294 km, 3,5 klst í keyrslu. 

Tími ferðar: 6-7 klst (3-4klst á ánni). 

Þátttaka: Minnst 2 þátttakendur frá 1. júní til 31.ágúst og 4 þátttakendur frá 1.september til 10. september.
Hámark: 50 manns.

Aldurstakmark:
18 ára.

Takið með ykkur:  

* mjög hlý föt til að vera í innan undir raft gallanum, reiknaðu með að öll fötin þín innan undir geta blotnað í gegn. 

* Verið bara í ull, flís eða gerviefni, ENGAN BÓMULL!

* föðurland og hlýjan bol næst líkamanum. 

* hlýja ullar eða flíspeysu.

* hlýjar buxur.

* Þykka hlýja ullarsokka. 

* handklæði og sundföt.


Vænst er til þess að þátttakendur hafi einhverja reynsla af flúðasiglingum eða hafi mjög mikla ævintýraþrá!
Aukalega:
Vatnsheld myndavél: 2.500 ISK
Hádegishlaðborð:  1.290 ISK
Grillveisla eftir siglinguna: 2.990 ISK

Samningsákvæði: Allar flúðasiglingarnar eru farnar á ábyrgð þátttakenda í hana.  Arctic Adventures ber ekki á nokkurn hátt ábyrgð vegna slysa sem rekja mega til gáleysis eða grandaleysis þátttakenda eða ekki er hægt að rekja með beinum hætti  til stórkostlegs gáleysis eða ásetnings starfsmanna fyrirtækisins. Þátttakendum kann að vera gert að skrifa undir ábyrgðaryfirlýsingu þess efnis, neitun á slíkri undirskrift fyrirgerir þátttakanda rétt til ferðar. Þrátt fyrir að ekki sé sérstaklega undirrituð slík yfirlýsing gildir fyrirvari þessi vegna allra ferða sem bókaðar eru hjá Arctic Adventures. Með kaupum og/eða þátttöku í ferðum á vegum fyrirtækisins hafa þátttakendur staðfest að þeir gera sér grein fyrir þeirri áhættu sem fylgir slíkum ferðum og að þeir eru á eigin ábyrgð.

Click here for English.