Hópefli, hellaferð og slökun á einum degi.
Auðveld hvataferð.
Byrjaðu daginn með fjörugum hópeflisleikjum til að hrista hópinn saman. Það eflir hópandan og allir eiga eftir að skemmta sér konunglega. Hópeflisleikirnir eru sniðnir að hverjum hóp hverju sinni svo það er mikilvæg að láta okkur vita um eðli hópsins, s.s. stærð á hóp, aldursbil og þess háttar.
Eftir ærslaganginn höldum við upp í Gjábakkahraun og snæðum þar nesti í laut við hellismynni Gjábakkahellis. Þegar allir hafa fyllt sig af gæðasamlokum hefst neðanjarðarævintýrið um lukta heima Lyngdalsheiðarinnar. Í forystu fer hellaleiðsögumaður sem fræðir fólkið um mögnuðu listaverk nátturunnar sem hafa myndast með tímanum í gegnum frost og hita. Ferð sem allir geta notið og tekið þátt í (sjá ferðina okkar
UnderWorld).
Að lokum er haldið í sundlaug í grendinni þar sem öllum gefst færi á að slaka á í heitum pottunum og gufubaði.
Óhætt er að segja að þessi dagur er frábær blanda af hópefli, ævintýrum og slökun!
Smáatriði:
Verð miðast við stærð hópa.
Leitið tilboða hjá skrifstofu (senda fyrirspurn).
Fjarlægð frá Reykavík: 50 km.
Lengd ferðar: 4-6 klst.
Í boði: allt árið (ath. Háð veðri).
Lágmark: 10 manns. Hámark: 80 manns.
Innifalið: Hellaferð, hópefli, kakó í hellinum, og aðgangur að sundlaug.
Taka með sér: handklæði, sundföt, vind- og vatnsheld útivistarföt, hlýja peysu og góða skó.
Engin fyrri reynsla nauðsynleg.
Fyrirvari: Allar ævintýraferðir eru farnar á ábyrgð
þátttakenda í henni. Arctic Rafting tekur sér ekki á herðar neina
ábyrgð vegna slysa sem verða vegna háttarlags eða hátternis þátttakenda
í ferðinnni eða vegna annarar aðstæðna sem rekja má til þeirra eigin
gjörða. Þátttakendur kunna að þurfa að skrifa undir yfirlýsingu þess
efnis en að öðrum kosti teljast kaup og þáttaka í ferðinni nægilegur
vottur þess efnis að þátttakendur geri sér grein fyrri því að öllum
ævintýraferðum og allri útivist fylgir ákveðin áhætta sem þátttakendur
taka sér á hendur með þátttöku.
Click here for English