Karfa
Heildarverð viðskipta 0 ISK
0,00 EUR
0,00 USD
Bookmark and Share

Starfsmannaferðir

Arctic Rafting er án efa eitt stærsta hvataferða-fyrirtæki landsins. Árlega ferðast þúsundir með okkur niður stórfljót Suðurlands, hraungöng Lyngdalsheiðar og kristaltærar sprungur Þingvalla í ævintýraleit.

Við eigum okkur djúpar rætur í ævintýraferðum og útivist. Arctic Rafting var stofnað árið 1997 og árið 2005 var því slegið saman við Bátafólkið sem hafði þá starfað í 20 ár á Hvítá. Síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar (bókstaflega) og við höfum aukið við ferðaúrval okkar jafnt og þétt gegnum árin.

Nú er svo komið að við bjóðum ekki einungis upp á ævintýraferðir heldur bjóðum við upp á geggjuð leikjaprógrömm fyrir starfsmannahópa. Leiki þessa getum við framkvæmt hvar á landi sem er, oft mætum við hreinlega á staðinn í fyrirtæki og teljum í gott fjör.

Þessu til viðbótar rekum við veitingastað á Drumboddsstöðum við Hvítá, þangað koma mjög margir af okkar hópum og gera sér glaðan dag, hvort sem þeir hafa verið í hellaferð, snorkeling, rafting eða leikjum. Maturinn og drykkurinn er góður og á á góðu verði. Enginn sem hefur einu sinni komið í Drumbópartý gleymir því...!

Síðast en ekki síst bjóðum við upp á krefjandi starfsmannaferðir á Hvannadalshnúk frá Skaftafelli, sem og frábærar undirbúningsferðir á Heklu og fleiri tinda.

Hér er svo krækjur á helstu ferðir okkar, ekki hika við að hafa samband við okkur ef spurningar vakna.

Rafting á Hvítá

Hellaferðir í Gjábakkahelli

Snorkeling í Silfru


Ratleikur í Hveragerði

Hvannadalshnjúkur og fleiri tindar.

Leikjaprógramm