River Fun: Afternoon Departure

Sun Mán Þri Mið Fim Fös Lau
2590 ISK
300 ISK
6000 ISK
Brottfarartími

Open the calendar popup.
1
9990 ISK
59,37 EUR
77,64 USD
ISK
59,37 EUR
77,64 USD
Karfa
Heildarverð viðskipta 0 ISK
0,00 EUR
0,00 USD
Bookmark and Share

RiverFun - Rafting á Hvítá

Rafting á Hvítá  neðan við Gullfoss
Erfiðleikastig 2+ af 5 mögulegum.

Hvítá er fallegt og hressilegt fljót í klukkutíma fjarlægð frá Reykjavík, þar hafa nú í 20 ár verið starfræktar vinsælustu flúðasiglingar landsins frá bátahúsinu okkar, Drumbó. Farin er 7 kílómetrar leið gegnum falleg gljúfur og  margvíslegar flúðir. Siglingar á Hvítá henta öllum og nálægðin við Gullna hringinn og Reykjavík hafa skapað ánni gríðarmiklar vinsældir. Siglingin hefst við Veiðistaðinn og liðast niður fljótið gegnum flottar öldur og miðlungs stórar holur. Silgt er gegnum sérstæðar bergmyndanir í Brúarhlöðum og sé þess óskað fá ræðarar að stökkva þar af kletti í ánna. Skemmtileg og fjölbreytt sigling fyrir alla sem eru í ævintýraleit!

Örugg brottför fyrir minnst 2 þátttakendur alla daga kl. 8:00 og 12:00 frá Fjallakofanum á Laugavegi 11 eða frá Drumboddsstöðum kl. 10:00 og14:00 sé hist á staðnum. Þetta gildir tímabilið 15. maí til og með 15. september. Fyrir minnst 4 þátttakendur alla daga kl. 12:00 frá Fjallakofanum og 14:00 frá Drumboddstöðum, 15. apríl til 14. maí og 16. september til 1. október.

Smáatriði:

Verð:

9.990 kr
á mann án aksturs frá Reykjavík.
Innifalið er flúðasigling og heitar sturtur og sauna eftir siglinguna.
14.990 kr
á mann með akstri frá Reykjavík kl. 8:00 og hádegisverðahlaðborði.
15.990 kr á mann með akstri frá Reykjavík kl. 12:00 og grillveislu.

Kíktu líka á úrvalið af combo ferðum sem blanda river rafting við fleiri ævintýri.
Akstur frá Reykjavík og flestum gististöðum á Suðurlandi er í boði sé þess óskað.

Tímabil: frá apríl til október (Ath. Háð veðri).

Fjarlægð frá Reykjavík: 100 km.

Lengd ferðar: 3 klst. án aksturs frá Reykjavík. 7 klst. með akstri fram og tilbaka frá Reykjavík.

Lágmark: 2 þátttakendur frá 15. maí til 15. september. 4 þátttakendur frá 15. apríl til 14. maí og 16. september til 1.október. Hámark: 200.

Aldurstakmark: 12 ár til að sigla niður alla ána. 10 ár til að sigla niður seinni helminginn.

Þátttakendur verða að taka með sér: handklæði, sundföt, föt til skiptana og hlýja peysu (flís/ull) sem mun líklega blotna.

Fyrir þá sem koma sjálfir á Drumboddsstaði er hægt að bæta við hádegisverðarhlaðborði fyrir 1.450 kr. Láta þarf vita fyrirfram.

Kort af leiðinni á Drumbó

Mikilvægar upplýsingar um ferðina!

Ath:
Á Drumbó er veitingasalur og bar, þar er boðið upp á hina goðsagnakenndu grillveislu Arctic Rafting “Volcanic BBQ” fyrir hópa. Þar er einnig hægt að halda hádegisverðarfund eða teiti eftir matinn.

Hvað er flúðasigling?
Þátttakendur sitja 4-12 saman í uppblásnum raft-báti ásamt leiðsögumanni. Í sameiningu þræðir hópurinn flúðir og gljúfur fljóta Suður- eða Noðurlands. Allir klæðast sérstökum blautgöllum, björgunarvestum og hjálmum. Því til viðbótar fá þátttakendur blautskó og gott getur verið að taka með sér ullarsokka eða góða göngusokka (ekki nauðsynlegt). Hægt er að velja um mismunandi erfiðleikastig siglinga, frá Class II til Class IV+.

Fyrirvari: Allar rafting ferðir eru farnar á ábyrgð þátttakenda í henni. Arctic Rafting tekur sér ekki á herðar neina ábyrgð vegna slysa sem verða vegna háttarlags eða hátternis þátttakenda í ferðinnni eða vegna annarra aðstæðna sem rekja má til þeirra eigin gjörða. Þátttakendur kunna að þurfa að skrifa undir yfirlýsingu þess efnis en að öðrum kosti teljast kaup og þátttaka í ferðinni nægilegur vottur þess efnis að þátttakendur geri sér grein fyrir því að öllum ævintýraferðum og allri útivist fylgir ákveðin áhætta sem þátttakendur taka sér á hendur með þátttöku.

Click here for English