Karfa
Heildarverð viðskipta 0 ISK
0,00 EUR
0,00 USD
Bookmark and Share

Leiðsögumenn og starfsfólk


Arctic Rafting fjölskyldan samanstendur af áhugaverðu fólki sem kemur alls staðar að Íslandi og utan úr heimi. Sumir eru stórir, aðrir stuttir, sumir eru stöðugt hátt uppi aðrir jarðtengdari. Öll eru þau fagfólk, hver á sínu sviði. Einhverjir eru ástríðufullir fjallagarpar á meðan aðrir þrífast á straumkayak, köfun eða á skíðum. Hver og einn hefur sitt áhugamál. En það er samt eitt sem allir eiga sameiginlegt og heldur hópnum saman en það er náttúran.

Þetta unga fyrirtæki sem byggðist út frá gömlum farvegi hefur gengið vel að útvega kúnnum sínum fjölbreyttar ævintýraferðir síðan fyrirtækið var sett á stofn árið 2005.  Úrval dagsferða verður meira með hverju ári sem líður, sem gleður kúnnana og leiðsögumennina ennfremur. Með því að skoða vefsíður Arctic Rafting og Arctic Adventures er hægt að skoða allar dags- og pakkaferðir sem boðið er uppá, bæði vetrar- og sumarútgáfur.  Sumrin eru mjög annasöm fyrir hópinn en við kunnum mjög vel við okkur í amstrinu. Veturnir eru minna annasamir en það er engin ásæða til þess að leggjast í dvala, það þýðir bara minni vinna fyrir hópinn en meiri tími til þess að leika sér og ferðast.

Eigendurnir eru ævintýramenn frá topppi til táar með margra ára reynslu í að halda risa batteríinu "Arctic Rafting og Arctic Adventures" gangandi. Þeir hafa sérstakan hæfileika til þess að láta ógerlega hluti ganga upp.  Þeir hafa einnig sérstaka hæfileika til þess að gera marga hluti einu í hinum ýmsu aðstæðum, t.d. að svara mikilvægum viðskipta símtölum á meðan þeir eru á leiðinni upp skíðalyftu í -15°C. Þeir hafa báðir aðlagast skrifstofuvinnu furðu fljótt, en freistast til þess að leiðsegja nokkrar ferðir inn á milli til þess að fá sér frískt loft. Þeir nota svo frítíma sinn til þess eltast við eigin drauma og ævintýri bæði á Íslandi sem og erlendis.

Söluhópurinn er samansafn snillinga sem þekkja alla kanta allra þeirra mismunandi ferða sem við bjóðum upp á. Enda hafa þau notið þess að fara í allar ferðirnar. Allir í söludeildinni eru tilbúinir til þess að aðstoða þig við að finna þá ferð sem kæmi til með að passa þér ef þú ert í vandræðum með að velja.

Hver og einn leiðsögumaður hefur gengið í gegnum og staðist þá þjálfun sem krafist er fyrir hverja ferð. Ásamt þeim háa staðli sem Arctic Rafting hefur sett sem skilyrði til þess að fá að leiðsegja hafa flestir leiðsögumenn Arctic Rafting og Arctic Adventures lokið námi í Leiðsögumannaskóla. Auk þess hafa flestir leiðsögmennirnir lokið alþjóðlegum þjálfunum og prófum svo sem Wildernes First Responder (WFR) eða Fyrsta hjálp í óbyggðum og Swiftwater Rescue Technician (SRT) eða straumvatns björgunartæknifræði svo eitthvað sé nefnt.