Rafting á Norðurlandi
Í Austari og Vestari Jökulsá er hægt að velja á milli skemmtisiglingar niður vestari hlutann af ánni og sannkallaðrar ævintýraferðar niður þann austari.
Ferðin hefst frá glænýjum bækistöðvum okkar á Hafgrímsstöðum sem eru í 15 kílómetra fjarlægð frá Varmahlíð. Leiðsögumenn með margra ára reynslu sjá síðan um að tryggja að allir séu í öruggum höndum og skemmti sér frábærlega í ferðinni.
Hvort sem þú ert í ævintýraleit eða vilt einfalda og skemmtilega siglingu þá höfum við eitthvað fyrir þig á Norðurlandi!