Iceland Elements - Combination Tour - Summer Only

Sun Mán Þri Mið Fim Fös Lau
2000 ISK
2000 ISK
4000 ISK
Open the calendar popup.
2
35990 ISK
213,90 EUR
279,71 USD
ISK
213,90 EUR
279,71 USD
Karfa
Heildarverð viðskipta 0 ISK
0,00 EUR
0,00 USD
Bookmark and Share

Iceland Elements

Hápunktar Íslands - Samsett sumarferð frá Reykjavík

Erfiðleikastig 2 af 5 mögulegum

Innifelur:  Flúðasiglingu á Hvítá og snjósleðaferð á Langjökli.

Iceland Elements er ein fjörugasta samsetta dagsferðin sem við bjóðum uppá.  Við förum frá Reykjavík snemma morguns og ökum að Drumbó, bækistöðvum flúðasiglinganna, þar sem við fáum allan þann búnað sem til þarf fyrir siglinguna.  Farið verður yfir öll helstu öryggisatriði og hvernig skuli bera sig að í ánni, að því loknu skellum við okkur í ána.
Hvítá er fallegt og hressilegt fljót í klukkutíma fjarlægð frá Reykjavík, þar hafa nú í 20 ár verið starfræktar vinsælustu flúðasiglingar landsins frá bátahúsinu okkar, Drumbó. Sigld er 7 kílómetra löng leið gegnum falleg gljúfur og  margvíslegar flúðir. Siglingar á Hvítá henta öllum.  Siglingin hefst við Veiðistaðinn og liðast niður fljótið gegnum flottar öldur og miðlungs stórar holur. Siglt er gegnum sérstæðar bergmyndanir í Brúarhlöðum og sé þess óskað fá ræðarar að stökkva þar af kletti í ánna. Skemmtileg og fjölbreytt sigling fyrir alla sem eru í ævintýraleit! Eftir siglinguna fáum við hádegisverð áður en við leggjum leið okkar uppá hálendi.
Þegar komið er að rótum Langjökuls fáum við hlýja snjógalla og skóbúnað áður en farið verður yfir grundvallaratriði snjósleðaaksturs á jöklum.  Að því búnu tökumst við á við næst stærsta jökul landsins á snjósleðum .

Öruggar brottfarir fyrir minnst 2:  á miðvikudögum og laugardögum, fyrri minnst 2 þátttakendur, kl. 8:00-8:30 frá Reykjavík.  Aðra daga fyrir minnst 4 þátttakendur.

Smáatriði:

Verð:  33.990 kr. á manninn með akstri til og frá Reykjavík.
Þetta verð er miðað við tvo saman á sleða, hægt er að greiða 4.000 kr. aukalega á manninn fyrir sér sleða.
Ef óskað er eftir meiri hasar þá er hægt að sigla á kanó fyrir 2.000 kr. aukalega á manninn.

Innifalið: Akstur frá Reykjavík og tilbaka, flúðasigling á Hvítá, hádegismat á Drumbó og klukkutíma snjósleðaferð á Langjökli.
ATH.:  Ef gist er á hótelum miðbæjarins þá fer rútan kl. 8:00 frá Arctic Adventures skrifstofunni á Laugavegi 11.

Lengd ferðar:
  10 - 11 klukkustundir.

Lágmarks þátttaka: 2 þátttakendur á miðvikudögum og laugardögum, aðra daga lágmark 4 þátttakendur. Þetta gildir tímabilið frá 15. maí til 15. september.

Aldurstakmark: 10 ára sem farþegi á snjósleðanum, 12 ára til að sigla niður alla ána, 10 ára til að sigla niður seinni helminginn.

Takið með ykkur:
Fyrir siglinguna: Hlýja flís eða ullarpeysu, sundföt, föt til skiptana og handklæði.
Fyrir snjósleðaferðina: Hlýjan vetrarfatnað.  Við útvegum snjógalla og nauðsynlegan búnað en gott að vera vel búinn.

Kröfur:  Til þess að aka snjósleða þarf gilt ökuskírteini en börn geta setið aftan á.  Ekki er gert ráð fyrir að þátttakendur hafi neina reynslu.

Fyrirvari: Allar rafting ferðir eru farnar á ábyrgð þátttakenda í henni. Arctic Rafting tekur sér ekki á herðar neina ábyrgð vegna slysa sem verða vegna háttarlags eða hátternis þátttakenda í ferðinnni eða vegna annarra aðstæðna sem rekja má til þeirra eigin gjörða. Þátttakendur kunna að þurfa að skrifa undir yfirlýsingu þess efnis en að öðrum kosti teljast kaup og þátttaka í ferðinni nægilegur vottur þess efnis að þátttakendur geri sér grein fyrir því að öllum ævintýraferðum og allri útivist fylgir ákveðin áhætta sem þátttakendur taka sér á hendur með þátttöku.

Click here for English