Karfa
Heildarverð viðskipta 0 ISK
0,00 EUR
0,00 USD
Bookmark and Share

Nánari upplýsingar um raftingferðir Arctic Rafting

Þegar þú kemur í raftingferð með Arctic Rafting þarftu að vita að:
 
· ÞÁTTTAKA ÞÍN ER Á EIGIN ÁBYRGÐ.
· Þú mátt ekki vera undir áhrifum áfengis eða annarra vímugjafa.
· Þú verður að skrifa undir ábyrgaðaryfirlýsingu þess efnis á staðnum og greiða fyrir ferðina áður en hún hefst (hægt að greiða með debit/kredit á Hafgrímsstöðum).
· Þú þarft að róa bátnum.
· Þú þarft hugsanlega að halda á bátnum.
· Þú gætir fallið útbyrðis og þurft að synda að bátnum.
· Það er mjög áríðandi að þú fylgir skipunum stjórnenda alla ferðina.

Svo verður þú líka að muna eftir því að taka með þér:


    * Sundföt
    * Hlýja peysu sem má blotna
    * Handklæði

Frá Reykjavík til Hafgrímsstaða (Rafting á Austari og Vestari Jökulsá):

Aksturinn tekur um 4 klst ef ekið er án þess að stoppa á 90 km/klst. Ekið er norður á þjóðvegi 1 í átt að Mosfellsbæ frá Reykjavík, haldið áfram í gegnum Borgarnes, Bifröst, Laugarbakka, Víðigerði og Blönduós þar til komið er til Varmahlíðar. Beygt inn á veg nr. 752 sem er rétt áður en komið er inn í byggðina í Varmahlíð. Á honum er ekið í um 10-15 mínútur þar til komið er að Arctic Rafting bækistöðvunum okkar á Hafgrímsstöðum. Hafgrímsstaðir eru 5 km lengra en Steinsstaðir.

Click here for English.