Hvernig kemst ég til Hafgrímsstaða (Rafting á Austari og Vestari Jökulsá):
Beint frá Reykjavík til Hafgrímsstaða: Aksturinn
tekur um 4 klst ef ekið er án þess að stoppa á 90 km/klst. Ekið er norður á
þjóðvegi 1 í átt að Mosfellsbæ frá Reykjavík, haldið áfram í gegnum
Borgarnes, Bifröst, Laugarbakka, Víðigerði og Blönduós þar til komið er
til Varmahlíðar. Beygt inn á veg nr. 752 sem er rétt áður en komið er inn í byggðina í Varmahlíð. Á honum er
ekið í um 10-15 mínútur þar til komið er að Arctic Rafting bækistöðvunum okkar
á Hafgrímsstöðum. Hafgrímsstaðir eru 5 km lengra en Steinsstaðir.
Click here for English.