Markmið umhverfisstefnu: Takmark okkar er einfaldlega:
"Náttúran er ævintýrið". Með það að viðmiði höfum við sniðið ferðir okkar þannig að þær skaði hvorki né hafi áhrif á náttúruna sem slíka. Í ferðum okkar sjáum við til þess að kúnnar okkar séu meðvitaðir um það og skilji ekki eftir sig ummerki í náttúrunni.
Við förum eftir fjórum viðmiðum:
Takið ekkert nema myndir.
Eyðið engu nema tíma.
Skiljið ekkert eftir nema fótspor.
Skapið ekkert nema minningar.
Umhverfisábyrgð: Þegar við stöndum fyrir fólksflutningi eða flutningi farangurs og byrgða greiðum við gjald á móti til kolefnisjöfnunar hjá Iceland Carbon Fund
(www.kolvidur.is).
Við tökum einnig þátt í náttúruvernd hjá Náttúruverndarsamtökum Íslands
(www.natturuverndarsamtok.is). Í gegnum þau tökum við virkan þátt í eftirliti með framkvæmdum á hálendi Íslands. Samtökin eru frjáls félagasamtök áhugafólks um náttúruvernd. Eitt mikilvægasta stefnumið Náttúruverndarsamtaka Íslands er að vernda miðhálendi Íslands.
Við endurvinnum eins mikið af úrgangi og mögulegt er. Bæði á skrifstofu okkar og í öðrum aðstöðum, í ferðum okkar sjáum við til þess að ekkert rusl verði eftir í náttúrunni.
Í gönguferðum okkar um náttúru Íslands setjum við mikla áherslu á að skilja ekkert eftir sig í náttúrunni:
Takið ekkert nema myndir.
Eyðið engu nema tíma.
Skiljið ekkert eftir nema fótspor.
Skapið ekkert nema minningar. Í upphafi hverrar ferðar upplýsum við kúnna okkar um það hvernig skuli ganga um náttúruna á Íslandi án þess að skilja eftir ummerki, svo komandi kynslóðir fái einnig að njóta náttúrunnar ósnortinnar.
Við stöndum fyrir okkar eigin námskeiðum fyrir leiðsögumenn okkar og erum með eina flúðasiglinga skólann hér á Íslandi. Íslendingar eru allajafna mjög meðvitaðir um umhverfisvernd og þess þá heldur fólk sem starfar í náttúrunni.
Samfélagsleg ábyrgð:
Við reynum að taka þátt í fjáröflunum fyrir börn í Asíu og styrkjum að minnsta kosti eitt barn á ári til menntunar og matar. Við sendum einnig alla óskilamuni til Rauða Krossins. Við bjóðum uppá heita drykki, kúnnunum að kostnaðarlausu en bendum fólki á að gefa þá pening til ABC barnahjálpar.
Efnahagsleg ábyrgð: Við gerum okkar besta til þess að notast við íslenskar vörur og afurðir, t.d. notum við aðeins íslenskt lamb/lax og grænmeti.
Ferðir okkar eru umfram allt íslenskar, nestið er alíslenskt t.d. hangikjöt frá Húsavík og harðfiskur frá Vestfjörðum. Ef snætt er á veitingahúsum eru það alltaf íslensk veitingahús sem verða fyrir valinu. Nánast öll okkar þjónusta fer fram á landsbyggðinni og reynum við eftir okkar fremsta megni að versla við heimamenn.