Karfa
Heildarverð viðskipta 0 ISK
0,00 EUR
0,00 USD
Bookmark and Share

Afbókunarstefna

Útlistun afbókunarstefnu okkar

Nokkur orð um afbókunarstefnu okkar:

10% af heildarverði ferðar er óendurgreiðanlegt, þessi prósenta endurspeglar kostnaðinn af bókunarferli og undirbúnings ferðar sem bókuð er.

Ef þú afbókar dagsferð með okkur með meira en viku (7 dagar) fyrirvara færðu 90% af heildarverði ferðar endurgreitt.  Ef þú afbókar dagsferð með innan við viku fyrirvara færðu 70% af heildarverði ferðar endurgreitt.  Ef þú afbókar innan við tveggja daga fyrirvara (48 klst) fæst engin endurgreiðsla.

Ef þú afbókar pakkaferðir eða leiðangra, þar með taldar hópeflisferðir og starfsmannaferðir með innan við fjögurra vikna (28 dagar) fyrirvara færðu 90% af heildarverði ferðar.  Ef slíkar ferðir eru afbókaðar með innan við fjögura vikna fyrirvara færðu 50% af heildarverði ferðar endurgreitt.  Ef slíkar ferðir eru afbókaðar með innan við tveggja daga (48 klst) fyrirvara fæst engin endurgreiðsla.

Heildartala þátttakenda í ferð sem gefin er upp 48 klst fyrir ferð er tekin sem loka tala og fer rukkun fram samkvæmt þeirri heildartölu.  Þar af leiðandi fæst engin endurgreiðsla fyrir afbókun innan við 48 klst fyrir ferð.

Nokkur orð um ferðatryggingar:

Í samræmi við allan ferðaiðnað mælum við sterklega með því að fólk kaupi ferðatryggingu í heimalandi sínu sem kæmi til með að tryggja þann kostnað sem upp kemur ef afbókun verður vegna óviðráðanlegra ástæðna.  Þessháttar trygging er ekki dýr og nær í flestum tilfellum einnig yfir aðrar áhættur.  Allajafna er það mjög gott að vera með ferðatryggingu á ferðalagi um heiminn.

Nokkur orð um veður og aðstæður:

Allar ævintýra og útivistar ferðir eru háðar veðri og aðstæðum og við tileinkum okkur þann rétt til þess að breyta dagskrá eða aflýsa ferðum með öryggi kúnna í huga.  Vinsamlegast hafið í huga að Ísland er og verður alltaf Ísland, veðrið breytist ört á Íslandi og við það breytast aðstæður.  Leiðsögumenn okkar eru þjálfaðir í að bregðast við breyttum aðstæðum og öryggi kúnna er það sem hefur forgang þegar það kemur að því að taka ákvarðanir.  Vinsamlegast takið tillit til þessa og virðið ákvörðunar rétt leiðsögumannsins.  Þetta hefur sérstaskt gildi þegar ferðast er um Ísland á veturna.  Sumarferðir okkar (fyrir utan háfjallaferðir), sem eru frá maí fram í september verða sjaldan fyrir miklum áhrifum veðursins vegna.

Nokkur orð um "áætlaða áhættu" og afþreyingu:

Gestir og kúnnar eru meðvitaðir um að allar afþreyingar sem við bjóðum uppá er á þeirra eigin ábyrgð og að þeim beri að haga sér samkvæmt leiðbeiningum Arctic Adventures, Arctic Rafting, Glacier Guides eða samstarfsaðilum þeirra og séu ábyrgir fyrir eigin öryggi.  Öllum ævintýraferðum og afþreyingum utandyra fylgir áhætta.  Allar ferðir eru farnar á ábyrgð þátttakenda í henni. Arctic Adventures og samstarfsaðillar taka sér ekki á herðar neina ábyrgð vegna slysa sem verða vegna háttarlags eða hátternis þátttakenda í ferðinnni eða vegna annarra aðstæðna sem rekja má til þeirra eigin gjörða. Þátttakendur kunna að þurfa að skrifa undir yfirlýsingu þess efnis en að öðrum kosti teljast kaup og þátttaka í ferðinni nægilegur vottur þess efnis að þátttakendur geri sér grein fyrir því að öllum ævintýraferðum og allri útivist fylgir ákveðin áhætta sem þátttakendur taka sér á hendur með þátttöku.