Arctic Rafting er íslenskt ævintýra og afþreyinga fyrirtæki sem leggur áherslu á vistvæna ferðamennsku í einstakri náttúru Íslands.
Ef þig langar til að sjá Ísland í nýju ljósi þá getur Arctic Rafting gert fríið þitt á Íslandi að ógleymanlegu ævintýri. Við bjóðum upp á ferðir um allt land en þó sérstaklega á suðurlandi og í Skagafirði.
Við bjóðum upp á flúðasiglingar á mörgum skemmtilegustu ám Íslands. Á suðurlandi bjóðum við upp á daglegar siglingar á gúmmíbát og kanó á Hvítá. Við höfum nú opnað bækistöðvar í Skagafirði og erum nú með reglulegar flúðasiglingar í Jökulsá Vestari og Austari. Einnig bjóðum við upp á sjókayakferðir, hellaferðir, snorkeling, jökulgöngur, jeppaferðir og margt margt fleira.
Geysilega vinsælt hefur verið að snorkla og kafa í hinni heimsfrægu Silfru á Þingvöllum og ganga í Reykjadal og baða sig í heitum læk. Einnig hefur jöklaganga og ísklifur á Sólheimajökli slegið í gegn en sú ferð er frábær kynning á íslenskri jöklamennsku og fræðsla um það hvernig jöklarnir móta landið.
Einnig bjóðum við upp á ýmsar hvataferðir á öllu landinu. Við setjum saman skíðaferðir, snjóbrettaferðir, gönguferðir, kayakferðir, köfunarferðir, flúðasiglingar, klifur, brimbrettaferðir, íslenskar alpaferðir og margt fleira.
Click here for English.