Karfa
Heildarverð viðskipta 0 ISK
0,00 EUR
0,00 USD
Bookmark and Share

Into the Blue - Snorkeling í Silfru fyrir starfsmannahópa

Gljúfursund á flekamótunum í Silfru á Þingvöllum.
Erfiðleikastig 2 af 5 mögulegum: Auðvelt

Gjáin Silfra er eitt af best geymdu leyndardómum Íslands enda er hún staðsett í hjarta Þingvalla og býður gljúfursund á einum af 10 flottustu köfunarstöðum í heiminum. í Silfru er nefnilega eitt allra besta útsýni neðan vatnsmáls sem fyrirfinnst á þessari jörð. Snorkling í Silfru gefur einstakt tækifæri til að bera augum hraunmyndanir og yfirþyrmandi fegurð sprungunnar neðan vatnsmáls. Við látum okkur svífa, þyngdarlaus með letilegum straumnum og í gegnum gleraugun er umhverfið kristaltært. Into the Blue er afslappandi en jafnframt framandi upplifun á umhverfi sem fæstir sjá nokkurn tíman annars staðar en í draumum sínum.

Gljúfursund í Silfru er í boði allt árið um kring, en þessi ferð er mjög háð veðri yfir vetrartímann.

Verð: 7.000 kr á mann, miðað við 10 þátttakendur að lágmarki.

Einnig er hægt að bæta við dýrindis nesti og þá myndi ferðin kosta 8.000 kr á mann.

Einnig getum við gert tilboð í akstur ef eftir því er óskað. 

Lágmark: 10 þátttakendur.

Í boði: allt árið (Ath. Háð veðri).

Fjarlægð frá Reykjavík: 50 km.

Lengd ferðar: 2 klst. ef hist er á Þingvöllum. 4 klst. með akstri til og frá Reykjavík.

Þátttakendur verða að taka með sér: hlý undirföt (langbrækur og síðerma bol úr flís/ull), ullarsokka, handklæði, föt til skiptana.

Fyrri reynsla af íþróttinni er ekki nauðsynleg!


Hvað er snorkling?
Ferðamenn synda í sérstökum fötum, íklæddir dún og þurrgöllum í kristaltæru bergvatni með öndunarpípu í munni sér svo hægt sé að njóta umhverfsins neðan vatnsborðsins. Allir hafa froskalappir og eiga því auðvelt með sund.

Fyrirvari: Allar ævintýraferðir eru farnar á ábyrgð þátttakenda í henni. Arctic Rafting tekur sér ekki á herðar neina ábyrgð vegna slysa sem verða vegna háttarlags eða hátternis þátttakenda í ferðinnni eða vegna annarra aðstæðna sem rekja má til þeirra eigin gjörða. Þátttakendur kunna að þurfa að skrifa undir yfirlýsingu þess efnis en að öðrum kosti teljast kaup og þátttaka í ferðinni nægilegur vottur þess efnis að þátttakendur geri sér grein fyrir því að öllum ævintýraferðum og allri útivist fylgir ákveðin áhætta sem þátttakendur taka sér á hendur með þátttöku.