Karfa
Heildarverð viðskipta 0 ISK
0,00 EUR
0,00 USD
Bookmark and Share

Kapphlaupið mikla -Ratleikur og risasvifbraut í Hveragerði

The Amazing Incentive Race!
Hópefli með ævintýraleikjum í Hveragerði
Erfiðleikastig: allir geta skemmt sér í þessari ferð!

Þessi ferð byrjar á því að fara í ævintýralegan ratleik um Hveragerði. Hópnum er skipt niður í nokkur lið sem finna sér heróp og nafn. Liðin þeysa því næst um bæinn þveran og endilangan og leysa nýja þraut á hverjum stað. Samstarf og samvinna eru það sem þarf til að sigra daginn.

Ein af síðustu stöðvunum er hin ofur skemmtilega svifbraut yfir Varmá. Við brautina festa þátttakendur sig í stálvír og fljúga fram af gljúfurbarminum, yfir fossinn og fljótið. 
Hópnum stendur til boða að skella sér sund, heita potta og gufu eftir á. Geggjað hópefli sem allir geta verið með í!
Góð leið til að enda daginn á er að fara á einn af huggulegum veitingastöðunum við suðurströndina sem eru aðeins í 20 min fjarlægð (ekki innifalið í verðinu).

Öll verð eru miðuð við að hópar komi sér sjálfir á staðinn, hægt að fá tilboð í akstur

Verð á mann (lágmark 20 manns):
Ratleikur, sund/gufa/pottar: 5.000 kr á mann.
Ratleikur, sund/gufa/pottar og nesti í lokin: 6.000 kr á mann.

Fjarlægð frá Reykjavik:
40 km.

Lengd ferðar:
3-4 klst.

Í boði: frá 1. mars til 1.nóvember.

Lágmark: 20 manns. Hámark: 200 manns.
  
Taka með sér: útivistarföt, hlýja peysu, sundföt og handklæði.


Fyrirvari: Allar ævintýraferðir eru farnar á ábyrgð þátttakenda í henni. Arctic Rafting tekur sér ekki á herðar neina ábyrgð vegna slysa sem verða vegna háttarlags eða hátternis þátttakenda í ferðinnni eða vegna annarra aðstæðna sem rekja má til þeirra eigin gjörða. Þátttakendur kunna að þurfa að skrifa undir yfirlýsingu þess efnis en að öðrum kosti teljast kaup og þátttaka í ferðinni nægilegur vottur þess efnis að þátttakendur geri sér grein fyrir því að öllum ævintýraferðum og allri útivist fylgir ákveðin áhætta sem þátttakendur taka sér á hendur með þátttöku.

Click here for English