Karfa
Heildarverð viðskipta 0 ISK
0,00 EUR
0,00 USD
Bookmark and Share

RiverFun - Rafting á Hvítá fyrir starfsmannafélög

Rafting á Hvítá  neðan við Gullfoss
Erfiðleikastig 2+ af 5 mögulegum.

Hvítá er fallegt og hressilegt fljót í klukkutíma fjarlægð frá Reykjavík, þar hafa nú í 20 ár verið starfræktar vinsælustu flúðasiglingar landsins frá bátahúsinu okkar, Drumbó. Sigld er 7 kílómetrar leið gegnum falleg gljúfur og  margvíslegar flúðir. Siglingar á Hvítá henta öllum og nálægðin við Gullna hringinn og Reykjavík hafa skapað ánni gríðarmiklar vinsældir. Siglingin hefst við Veiðistaðinn og liðast niður fljótið gegnum flottar öldur og miðlungs stórar holur. Siglt er gegnum sérstæðar bergmyndanir í Brúarhlöðum og sé þess óskað fá ræðarar að stökkva þar af kletti í ánna. Skemmtileg og fjölbreytt sigling fyrir alla sem eru í ævintýraleit!
 
Flúðasigling niður Hvítá er í boði frá 15. apríl til 1. október (háð veðri og aðstæðum).

Verð á mann (lágmark 10 manns):
Rafting og sauna: 5.500 kr á mann.
Rafting, sauna og grillveisla*: 7.500 kr á mann.
*Kryddlegin lambasteik með grillsósu, ferskt salat með fetaosti, bakaðar kartöflur með hvítlaukssmjöri og grillaðir bananar með súkkulaði í eftirrétt. Þetta er borið fram með gosi (hægt að kaupa vín aukalega).
Auka:
25 L kútur: 25.000 kr.
Léttvínsflaska 750ml: 2.500 kr.
DJ/trúbador: 45.000 kr.

Kíktu líka á úrvalið af combo-ferðum sem blanda river rafting við fleiri ævintýri.
Akstur frá Reykjavík og flestum gististöðum á Suðurlandi er í boði sé þess óskað.
 
Fjarlægð frá Reykjavík: 100 km.

Lengd ferðar: 3 klst. án aksturs frá Reykjavík. 7 klst. með akstri til og frá Reykjavík.
 
  Þátttakendur verða að taka með sér: handklæði, sundföt, föt til skiptana og hlýja peysu (flís/ull).

Kort af leiðinni á Drumbó

Mikilvægar upplýsingar um ferðina!

Ath:
Á Drumbó er veitingasalur og bar.  Auk þess að bjóða þar upp á hina goðsagnakenndu grillveislu Arctic Rafting “Volcanic BBQ” fyrir hópa er einnig hægt að halda þar fund eða teiti eftir matinn.

Hvað er flúðasigling?
Þátttakendur sitja 4-12 saman í uppblásnum raft-báti ásamt leiðsögumanni. Í sameiningu þræðir hópurinn flúðir og gljúfur fljóta Suður - og Norðurlands. Allir klæðast sérstökum blautgöllum, björgunarvestum og hjálmum. Því til viðbótar fá þátttakendur blautskó og gott getur verið að taka með sér ullarsokka eða góða göngusokka (ekki nauðsynlegt). Hægt er að velja um mismunandi erfiðleikastig siglinga, frá Class II til Class IV+.

Fyrirvari: Allar rafting ferðir eru farnar á ábyrgð þátttakenda í henni. Arctic Rafting tekur sér ekki á herðar neina ábyrgð vegna slysa sem verða vegna háttarlags eða hátternis þátttakenda í ferðinnni eða vegna annarra aðstæðna sem rekja má til þeirra eigin gjörða. Þátttakendur kunna að þurfa að skrifa undir yfirlýsingu þess efnis en að öðrum kosti teljast kaup og þátttaka í ferðinni nægilegur vottur þess efnis að þátttakendur geri sér grein fyrir því að öllum ævintýraferðum og allri útivist fylgir ákveðin áhætta sem þátttakendur taka sér á hendur með þátttöku.