Karfa
Heildarverð viðskipta 0 ISK
0,00 EUR
0,00 USD
Bookmark and Share

Allt í botn! - Fjórhjólaferð og flúðasigling fyrir starfsmannahópa

Fjórhjólaferð á Hellisheiði rétt utan við Reykjavík.
Tegund ferðar: Starfsmannaferð


Fullkominn dagur ef starfsfólkið vill fullan dag af „action“! Það er ekkert betra en að byrja daginn á að fá vind í andlitið, þenja bensíngjöfina og þeytast um á fjórhjólum. Við skellum okkur saman á fjórhjól rétt við Litlu kaffistofuna og keyrum góðan slóða til að koma lífi í líkamann fyrir áframhaldandi skemmtun.Eftir fjórhjólin er keyrt á Litlu Kaffistofuna þar sem allir gæða sér á súpu og dýrlegu brauðmeti til að hlaða okkur upp af orku fyrir flúðasiglinguna. Eftir flúðasiglinguna geta starfsmenn skellt sér gufubað (á meðan rúm leyfir, hámark 20)

Verð á mann (lágmark 10 manns):
Fjórhjól, hádegismatur, rafting gufa: 16.500.
Fjórhjól, hádegismatur, rafting, gufa og grill: 18.500.
Ath.: Verðin miðast við tvo saman á fjórhjóli.
Auka:
25 L kútur: 30.000.
Ath. Akstur ekki innifalinn. Gerum tilboð í akstur miðað við lengd ferðar og fjölda þátttakenda.

Fjarlægð frá Reykjavík: 100  km.

Lágmark: 10 þátttakendur.

ATH! Hafa verður gilt ökuskírteini með sér til að fá að keyra fjórhjólin

Þátttakendur verða að taka með sér: Hlýjan og vatnsheldan fatnað, góða skó, sundföt, handklæði, hlýja peysu (ull/flís) og föt til skiptanna. 

Fyrirvari: Allar fjórhjólaferðir eru farnar á ábyrgð þátttakenda í henni. Arctic Adventures tekur sér ekki á herðar neina ábyrgð vegna slysa sem verða vegna háttarlags eða hátternis þátttakenda í ferðinnni eða vegna annarra aðstæðna sem rekja má til þeirra eigin gjörða. Þátttakendur kunna að þurfa að skrifa undir yfirlýsingu þess efnis en að öðrum kosti teljast kaup og þátttaka í ferðinni nægilegur vottur þess efnis að þátttakendur geri sér grein fyrir því að öllum ævintýraferðum og allri útivist fylgir ákveðin áhætta sem þátttakendur taka sér á hendur með þátttöku.

Click here for English