Fjórhjólaferð á Hellisheiði rétt utan við Reykjavík.
Tegund ferðar: Starfsmannaferð
Arctic Adventures býður upp á frábærar fjórhjólaferðir á Hellisheiði. Aðstaða okkar er við mótorkrossbrautina, gengt Litlu Kaffistofu. Í boði eru fjölbreytar ferðir um Hellisheiði og Hengilssvæðið. Til dæmis er hægt að þruma niður á Sandskeið um Bláfjallahraun. Einnig er þrælskemmtilegt að negla upp á Hellisheiðina og aka þúsundvatnaleið ( 2 klst. ferð). Staðlaða ferðin er ein klukkutstund en við erum alltaf til í að sérhanna ferðir samkvæmt þínum óskum.
Smáatriði:
Verð: 9.990 kr. á mann m.v. tvo á hjóli.
Verð: 11.990 kr. á mann m.v. einn á hjóli.
Í boðiallt árið (Ath. Háð veðri). Fjarlægð frá Reykjavík: 20 km. Heildarlengd ferðar 2 klst. Lágmark: 4. Hámark 60. Aldurstakmark: 17 ár. Þátttakendur verða að taka með sér: Hlýjan og vatnsheldan fatnað. Ökumenn á fjórhjólum verða að vera með gilt ökuskírteini með sér.
Fyrirvari: Allar fjórhjólaferðir eru farnar á ábyrgð þátttakenda í henni. Arctic Adventures tekur sér ekki á herðar neina ábyrgð vegna slysa sem verða vegna háttarlags eða hátternis þátttakenda í ferðinnni eða vegna annarar aðstæðna sem rekja má til þeirra eigin gjörða. Þátttakendur kunna að þurfa að skrifa undir yfirlýsingu þess efnis en að öðrum kosti teljast kaup og þáttaka í ferðinni nægilegur vottur þess efnis að þátttakendur geri sér grein fyrri því að öllum ævintýraferðum og allri útivist fylgir ákveðin áhætta sem þátttakendur taka sér á hendur með þátttöku.
Click here for English