Drumboddsstaðir í Biskupstungum eru sjaldan kallaðir annað en Drumbó. Frá Drumbó gerum við út siglingar okkar á Hvítá, hvort sem er á röftum eða kanóum. Þar erum við flotta aðstöðu til að taka móti gestum okkar; skiptiklefar, sturtur, saunaklefi, bar og veitingasalur. Það er erfitt að finna betri bjór en þann fyrsta, ískaldan eftir æsilega ferð niður Hvítá.
Við tökum einnig að okkur hverskonar veislu og fundarhöld á Drumbó, sendu okkur línu ef spurningar vakna: info@arcticrafting.is eða info@adventures.is.
Drumbó er 98 km frá Reykjavík og tekur að jafnaði 75 mínútur að aka til okkar. Best er að aka yfir Hellisheiði og beygja vinstri inn veg númer 35 (Grímsnes) og aka hann óhindrað alla leið framhjá Reykholti en stuttu eftir það sést skilti á hægri hönd merkt okkur. Fylgdu skiltunum þaðan alla leið heim á hlað.
Click here for English