Suðurlandssafarí hefur verið afar vinsæl síðustu ár hjá útskriftarnemum úr grunnskólum landsins. Enda tilvalið að halda upp á próflok og útskrift með stórskemmtilegri og æsilegri tveggja daga ferð um Suðurlandið.
Hér á eftir fylgir lýsing á þessari tveggja daga ferð um ævintýralendur Suðurlands. Þessi ferð hefur selst upp undanfarin ár, því borgar sig að bóka sem allra fyrst með vefpósti á skolar@arcticrafting.is.
Dagskrá:
Dagur 1:
Byrjað er á að fara í skemmtilegan ratleik með survivor þema. Krakkarnir þurfa að leysa úr líkamlegum sem og andlegum þrautum á harðahlaupum um Hveragerði. Einnig fara krakkarnir í alveg hreint magnaða svifbraut (aparólu), þar sem þau svífa yfir gljúfur, foss og fljót. Eftir svifbrautina geta þeir sem vilja stokkið í ánna sem er heit (það rennur heitur lækur í hana) og svo smella sér allir í sund. Eftir sundið er boðið upp á pizzu á nálægum veitingastað áður en ekið er að gististað.
Dagur 2:
Þegar krakkarnir rísa á fætur er farið í hellaferð á Lyngdalsheiði þar sem hópnum gefst þar færi á að upplifa ótrúlegt umhverfi elds og undirheima. Eftir hellaferðina er haldið til Drumboddstaða þar sem hápunktur ferðarinnar, flúðasigling á Hvítá, tekur við. Eftir siglinguna er svo notið góðrar grillveislu á Drumbó áður en haldið er á gististað eða aftur til Reykjavíkur.
ATH: Arctic Rafting áskilur sér rétt til þess að breyta uppröðun ævintýra á dögunum.
Verð: 13.990 kr. per mann.
ATH: rúta og gisting ekki innifalið. Við getum hins vegar bókað fyrir ykkur rútu og gistingu ef óskað er eftir því. Lágmark: 20 þátttakendur. Hámark: 120 þátttakendur.
Lengd ferðar: ca. 2 sólarhringar, miðað við að lagt sé af stað kl. 14:00 síðasta prófdag og komið heim um hádegi á þriðja degi.
Innifalið: Ratleikur, svifbraut, sundferð, pizzaveisla, hellaferð, flúðasigling og grillveisla.
Fyrirvari: Allar ævintýraferðir eru farnar á ábyrgð þátttakenda í henni. Arctic Rafting tekur sér ekki á herðar neina ábyrgð vegna slysa sem verða vegna háttarlags eða hátternis þátttakenda í ferðinnni eða vegna annarra aðstæðna sem rekja má til þeirra eigin gjörða. Þátttakendur kunna að þurfa að skrifa undir yfirlýsingu þess efnis en að öðrum kosti teljast kaup og þátttaka í ferðinni nægilegur vottur þess efnis að þátttakendur geri sér grein fyrir því að öllum ævintýraferðum og allri útivist fylgir ákveðin áhætta sem þátttakendur taka sér á hendur með þátttöku. Click here for English