Amazing School Race
5 klukkustunda ratleikur í Hveragerði.
Hér er um að ræða öflugasta ratleikinn okkar. Við byrjum á því að skipta hópnum í nokkur lið sem finna sér síðan heróp og nafn. Að því loknu þeysa liðin um bæinn þveran og endilangan og leysa nýja þraut á hverjum stað. Ein af síðustu stöðvunum er hin ofur skemmtilega svifbraut. Við brautina festa þátttakendur sig í stálvír og fljúga svo 100 metra milli gljúfurbarma, yfir foss og fljót. Síðan fá allir að stökkva niður fossinn og svamla í volgri ánni. Eftir ratleikinn er farið í sund og snædd pizza á nálægum veitingastað. Þetta er stórskemmtileg og viðburðarík ferð þar sem reynir á samvinnu og samstöðu krakkana.
Verð: 5.500 kr. per mann
Innifalið: ratleikur, svifbraut, sund og pizzaveisla.
Lágmark: 20 þátttakendur. Hámark: 120 þátttakendur.
Fjarlægð frá Rvk: 45 km.
Lengd ferðar: 5 klst, með sundi og pizzaveislu.
Krakkarnir verða að taka með sér: Vatnsheldan og hlýjan fatnað (buxur og jakka), góða skó, sundföt, handklæði og föt til skiptana ef áhugi er fyrir því að stökkva niður fossinn.
Hægt er að bæta við samlokum og svala, kostar þá ferðin 5.990 kr.
Fyrirvari: Allar ævintýraferðir eru farnar á ábyrgð þátttakenda í henni. Arctic Rafting tekur sér ekki á herðar neina ábyrgð vegna slysa sem verða vegna háttarlags eða hátternis þátttakenda í ferðinnni eða vegna annarra aðstæðna sem rekja má til þeirra eigin gjörða. Þátttakendur kunna að þurfa að skrifa undir yfirlýsingu þess efnis en að öðrum kosti teljast kaup og þátttaka í ferðinni nægilegur vottur þess efnis að þátttakendur geri sér grein fyrir því að öllum ævintýraferðum og allri útivist fylgir ákveðin áhætta sem þátttakendur taka sér á hendur með þátttöku. Click here for English