Flúðasigling á Hvítá Erfiðleikastig 2+ af 5 mögulegum. Hvítá er fallegt og hressilegt fljót í klukkutíma fjarlægð frá Reykjavík, þar hafa nú í hartnær 30 ár verið starfræktar vinsælustu flúðasiglingar landsins frá bátahúsinu okkar, Drumbó. Sigld er 7 kílómetra leið gegnum falleg gljúfur og margvíslegar flúðir. Siglingin hefst við Veiðistað og liðast niður fljótið gegnum flottar öldur og miðlungs stórar holur. Siglt er gegnum sérstæðar bergmyndanir í Brúarhlöðum og sé þess óskað fá ræðarar að stökkva þar af kletti í ánna ef aðstæður leyfa. Skemmtileg og fjölbreytt sigling fyrir skólakrakka.
Video úr ferðinni hér!
Verð: 4.500 kr
Innifalið: Sigling og allur búnaður.
Lágmark: 10 þátttakendur. Hámark: 120 þátttakendur.
Fjarlægð frá Reykjavík: 100 km.
Lengd ferðar: 3 klst. með undirbúningi og siglingu.
Taka með sér: handklæði, sundföt, föt til skiptana: buxur, peysu og sokka úr ull eða flís og bakpoka til að geyma fötin í inni í skiptiklefanum.
RiverParty Grand / Flúðasigling með grillveislu.
Vinsælasta ferðin 1996-2009! Ævintýraleg flúðasigling niður Hvítá. Eftir siglingu er glæsileg grillveisla tilbúin og borða allir á sig gat.
Lágmark: 10 þátttakendur. hámark: 120 þátttakendur.
Lengd ferðar: 4 klst.
Verð: (1) Raft og lambalæri: 6.500 kr. (2) Raft og hamborgaraveisla: 5.700 kr.
Innifalið: Sigling og grillveisla.
Matseðill sumar 2012:
(1) Lambalærissneiðar með piparsósu, franskar kartöflur, kokteilsósa, hrásalat og gos.
(2) Hamborgari m/öllu, franskar, kokteilsósa og gos.
Kort af leiðinni á Drumbó
Mikilvægar upplýsingar um ferðina!
Fyrirvari: Allar raftingferðir eru farnar á ábyrgð þátttakenda í henni. Arctic Rafting tekur sér ekki á herðar neina ábyrgð vegna slysa sem verða vegna háttarlags eða hátternis þátttakenda í ferðinnni eða vegna annarra aðstæðna sem rekja má til þeirra eigin gjörða. Þátttakendur kunna að þurfa að skrifa undir yfirlýsingu þess efnis en að öðrum kosti teljast kaup og þátttaka í ferðinni nægilegur vottur þess efnis að þátttakendur geri sér grein fyrir því að öllum ævintýraferðum og allri útivist fylgir ákveðin áhætta sem þátttakendur taka sér á hendur með þátttöku. Click here for English