UnderWorld / Hellaferð á Lyngdalsheiði á Þingvöllum.
Kannaðu lukta heima Íslands neðanjarðar. Gengið er inn í helli á Lyngdalsheiði þar sem óteljandi hraunmyndanir og torfærur bíða þín. Náttúran hefur þar meitlað með tíma, frost og hita að vopni hin mögnuðustu listaverk. Við klifrum, skríðum og göngum á ferðum okkar fjarri sólu. Æsileg og framandi ferð sem allir geta tekið þátt í og notið.
Verð: 4.200 kr. per mann.
Innifalið: allur nauðsynlegur búnaður til hellaferðar s.s. hjálmur og hellaljós.
Lágmark:15 þátttakendur. Hámark: 100 þátttakendur.
Fjarlægð frá Rvk: 45 km.
Lengd ferðar: 1-2 klst.
Krakkarnir verða að taka með sér: Góða skó (helst gönguskó), vettlinga, vatnsheldan og hlýjan fatnað, jakka og buxur.
Hægt er að bæta við samlokum og safa, kostar þá ferðin 4.690 kr.
Fyrirvari: Allar hellaferðir eru farnar á ábyrgð þátttakenda í henni. Arctic Rafting tekur sér ekki á herðar neina ábyrgð vegna slysa sem verða vegna háttarlags eða hátternis þátttakenda í ferðinnni eða vegna annarra aðstæðna sem rekja má til þeirra eigin gjörða. Þátttakendur kunna að þurfa að skrifa undir yfirlýsingu þess efnis en að öðrum kosti teljast kaup og þátttaka í ferðinni nægilegur vottur þess efnis að þátttakendur geri sér grein fyrir því að öllum ævintýraferðum og allri útivist fylgir ákveðin áhætta sem þátttakendur taka sér á hendur með þátttöku. Click here for English