Karfa
Heildarverð viðskipta 0 ISK
0,00 EUR
0,00 USD
Bookmark and Share

Ævintýraferðir fyrir skóla og bekki

Arctic Rafting er ævintýrafyrirtæki á Suðurlandi sem býður upp á flúðasiglingar á Hvítá auk fleiri skemmtilegra ævintýraferða fyrir einstaka bekki eða heila skóla.

Árlega, í meira en 10 ár, hafa hundruðir unglinga að loknum samræmdum prófum og útskrift silgt niður Hvítá og snætt grillveislu á eftir í veitingasalnum á Drumbó. Fyrir nokkrum árum byrjuðum við svo að bjóða upp á fleiri möguleika fyrir þessa hópa til að skemmta sér og upplifa íslenska náttúru.

Undirtektir hafa verið framar öllum vonum og nú er svo komið að færri komast að en vilja í tveggja daga ferðina okkar. Ástæðan er einföld, Suðurlands Safarí er geggjað skemmtileg og ódýr ferð sem gefur krökkunum tækifæri á upplifa náttúruna og æsileg ævintýri samtímis því sem vinaböndin eru treyst.

Hér á síðunni okkar getur þú kynnt þér þjónustu okkar og ef þig vantar frekari upplýsingar eða hefur áhuga á að bóka, ekki hika við að senda okkur póst á skolar@arcticrafting.is. Svo er auðvitað alltaf hægt að hringja í okkur í síma 562-7000 á milli 8:00 og 22:00 alla daga.


Click here for English