Two Fjords Discovery - From Ísafjörður

Sun Mán Þri Mið Fim Fös Lau
Open the calendar popup.
4
14990 ISK
93,47 EUR
127,40 USD
ISK
93,47 EUR
127,40 USD
Karfa
Heildarverð viðskipta 0 ISK
0,00 EUR
0,00 USD
Bookmark and Share

Tveggja fjarða rólegheit - Sjókayak frá Ísafirði

Tveggja fjarða rólegheit - Sjókayakferð frá Ísafirði
Erfiðleikastig 4 af 5 mögulegum

Ísafjarðardjúp hentar einstaklega vel til kayaksiglinga fyrir byrjendur sem og lengra komna kayakræðara. Einstök fegurð Djúpsins er vel þekkt af heimamönnum en svo gott sem ókunn umheiminum. Strandlengja Snæfjallastrandarinnar minnir mikið á nálægð norðurheimskautabaugs en fimmti stærsti jökull Íslands gnæfir yfir henni. Nesið Folafótur milli Seyðisfjarðar og Hestfjarðar er fallegur staður til að róa um meðan fylgst er með ótrúlegu dýralífi strandlengjunnar.

Ferðin hefst á 40 mínútna keyrslu frá Ísafirði inn í botn Seyðisfjarðar. Eftir stutta kynningu og öryggiskennslu, eru bátarnir undirbúnir og lagt er af stað á lygnu vatninu meðfram stöndinni. Við enda nessins er lagt að landi á sandströnd og gengið um rústir byggðarinnar í Folafæti og skoðaðar bergmyndanir sem urðu til vegna rofs. Hér ber að hafa augun opin fyrir selum og hvölum því oft sést til slíkra dýra. Hægt er að róa frá Folafæti út í eyjuna Vigur ef veðrið er gott og ef hópurinn hefur áhuga á því. Eyjan er algjör náttúruperla, þar er stórkostlegt fuglalíf og íbúar hennar lifa svo sannarlega einfaldara og hægara lífi en íbúar þéttbýlisins á Ísafirði. Næst er róið meðfram strönd Hestfjarðar þar sem komið er að landi við þjóðveginn og keyrt aftur til Ísafjarðar.

Staðfest brottför sunnudaga, þriðjudaga, fimmtudaga og laugardaga kl. 9:00 fyrir minnst 4 þátttakendur, gildir tímabilið 15. maí til 30. september.

Verð:
14.990 kr á mann

Innifalið í verði: Keyrsla frá Ísafirði og tilbaka, leiðsögn,nesti og allur kayakbúnaður

Tímabil: 15. maí til 30. september.

Brottför:
 sunnu-, þriðju-,fimmtu- og laugardaga klukkan 9:00 frá upplýsingamiðstöð Ísafjarðar eða frá Ísafjarðarflugvelli í tengslum við morgunflug. Athugið að einnig er hægt að semja um brottför á öðrum tíma dags.

Aldurstakmark:
15 ár.

Lengd: 8 klst.

Lágmarksþátttaka: 4 einstaklingar.

Búnaður: Mælt er með því að vera í ullar- eða flís nærfatnaði undir vatnsheldum kayakfatnaði og aukafatanað til öryggis.



Fyrirvari: Allar kayakferðir eru farnar á ábyrgð þátttakenda í henni. Arctic Rafting tekur sér ekki á herðar neina ábyrgð vegna slysa sem verða vegna háttarlags eða hátternis þátttakenda í ferðinnni eða vegna annarra aðstæðna sem rekja má til þeirra eigin gjörða. Þátttakendur kunna að þurfa að skrifa undir yfirlýsingu þess efnis en að öðrum kosti teljast kaup og þátttaka í ferðinni nægilegur vottur þess efnis að þátttakendur geri sér grein fyrir því að öllum ævintýraferðum og allri útivist fylgir ákveðin áhætta sem þátttakendur taka sér á hendur með þátttöku.

Click here for English