Langisjór Kayaking Tour - 4 days

Sun Mán Þri Mið Fim Fös Lau
4
199990 ISK
1247,05 EUR
1699,73 USD
ISK
1247,05 EUR
1699,73 USD
Karfa
Heildarverð viðskipta 0 ISK
0,00 EUR
0,00 USD
Bookmark and Share

Leiðangurinn í Langisjó - Sjókayak á Langasjó að Fjallabaki


Langisjór Kayak leiðangur

4 daga kayak og gönguferð á og um Langasjó með stoppi í Landmannalaugum.

Erfiðleikastig 3+ af 5 mögulegum.  Krefjandi

Lagt er í leiðangurinn frá Reykjavík í breyttum jeppum og ökum uppá hálendi Íslands.  Ótrúleg ósnert náttúran blasir við okkur og gleymist seint.  Við sláum upp búðum við suðvestur enda Langasjós.  Næstu tvo daga róum við á Langasjó í átt til Vatnajökuls, stærsta jökuls Evrópu.  Langisjór er umkringdur fjöllum og er ein af mörgum fegurstu perlum Íslands og örugglega eitt af bestu vötnum Evrópu til þess að róa.  Eftir róðrar dagana tjöldum við á góðum stað við vatnið og njótum einstöku kyrrðarinnar.  Á fjórða degi göngum við á Sveinstind og fáum að upplifa ótrúlegt útsýni yfir á Vatnajökul og Fjallabaks svæðið.  Þegar við komum aftur niður af Sveinstindi er ekið til Reykjavíkur.

Öruggar brottfarir 2012 fyrir minnst 4 þátttakendur:

26.júní
24.júlí
14.ágúst


Ferðin hefst kl 8:00 þar sem kúnnar eru sóttir á hótel.  Vinsamlegast sjáið til þess að vera tilbúin með allan farangurinn fyrir ferðina kl 8:00.

Smáatriði:

Verð: 199.990 ISK á manninn.

Innifalið: Akstur til og frá Reykjavíkur, leiðsögumaður og allur búnaður fyrir kayak róður, tjaldbúnaður (fyrir utan svefnpoka, dýnu og kodda).

Innifalinn matur: Hádegis- og kvöldverður á fyrsta degi, morgun-, hádegis- og kvöldverður á degi 2 og 3, morgun- og hádegisverður á 4. degi.

Ekki innifalið: Svefnpoki, dýna og koddi, en hægt er að leigja það hjá okkur.  Vinsamlegast hafið samband með fyrirvara ef þið þurfið að leigja búnað.


Fjarlægð frá Reykjavík: 200 km.

Lengd ferðar:
4 dagar.

Í boði: Frá júní til ágúst (fer eftir veðri).

Lágmarks þátttaka: 4 þátttakendur. Hámarks þátttaka: 10 þátttakendur.

Aldurstakmark: 18 ára.

Takið með ykkur:
Hlý útivistar föt, föðurland, flís buxur og peysu, auka fatnað og sundföt... takið allt sem þið þurfið í 4 daga á hálendi Íslands
 
Smellið hér fyrir útlistun á afbókunarstefnu okkar


Smellið hér fyrir útbúnaðarlista.

Fyrirvari: Allar kayakferðir eru farnar á ábyrgð þátttakenda í henni. Arctic Rafting tekur sér ekki á herðar neina ábyrgð vegna slysa sem verða vegna háttarlags eða hátternis þátttakenda í ferðinnni eða vegna annarra aðstæðna sem rekja má til þeirra eigin gjörða. Þátttakendur kunna að þurfa að skrifa undir yfirlýsingu þess efnis en að öðrum kosti teljast kaup og þátttaka í ferðinni nægilegur vottur þess efnis að þátttakendur geri sér grein fyrir því að öllum ævintýraferðum og allri útivist fylgir ákveðin áhætta sem þátttakendur taka sér á hendur með þátttöku.

Click here for English