Hot Pots & Kayaking Seals - From Ísafjörður

Sun Mán Þri Mið Fim Fös Lau
4
15990 ISK
99,71 EUR
135,90 USD
ISK
99,71 EUR
135,90 USD
Karfa
Heildarverð viðskipta 0 ISK
0,00 EUR
0,00 USD
Bookmark and Share

Kayak Paradís - Sjókayakferð um Reykjanes í Ísafjarðardjúpi

Kayak Paradís - Sjókayakferð frá Ísafirði
Erfiðleikastig 3 af 5 mögulegum

Reykjanes í Ísafjarðardjúpi er uppáhaldsstaður margra íslenskra kayakræðara. Ástæðan liggur í augum uppi um leið og komið er á staðinn. Vatnið í kringum Reykjanes er oftast lygnt og selar sjást oft austan við nesið. Gamla útisundlaugin (sú stærsta á öllum Vestjförðum) er frábær æfingalaug áður en haldið er á sjóinn með Drangajökul og Snæfjallaströnd í baksýn.

Eftir akstur frá Ísafirði (1,5 klst.) er farið í laugina í stutta kennslu þar sem farið er yfir róðrartækni, félagabjörgun og kayakveltu. Eftir hádegismat er haldið út á sjó í rólega kayakferð meðfram stöndinni til að skoða seli og fugla á heimaslóðum sínum. Ef veður leyfir er mögulegt að róa að Borgarey og kanna lundabyggðina sem þar er. Róið er í nágrenni Reykjaness í 3 til 4 klukkustundir, svo er slakað á í heitu pottunum í Reykjanesi áður en haldið  er aftur til Ísafjarðar.

Staðfest brottför, mánudaga, miðvikudaga og föstudaga kl. 9:00 fyrir minnst 4 þátttakendur. Gildir tímabilið 15. maí til 30. september.

Verð:
15.990 kr á mann.

Innifalið í verði: Akstur inn í Reykjanes, leiðsögn, sjókayakbúnaður, nesti og aðgangur að sundlauginni.

Tímabil: 15. maí til 30. september.

Brottför:
Mánudaga, miðvikudaga og föstudaga kl: 9:00 frá Ísafirði, gildir frá 15. maí til 30. september.

Búnaður: Mælt er með því að vera í ullar- eða flís nærfatnaði undir vatnsheldum kayakfatnaði. Komdu með aukafatnað til öryggis. Ekki gleyma sundfatnaði og handklæði.

Lengd:
8 klst.

Lágmarksþátttaka: 4 einstaklingar.


Fyrirvari: Allar kayakferðir eru farnar á ábyrgð þátttakenda í henni. Arctic Rafting tekur sér ekki á herðar neina ábyrgð vegna slysa sem verða vegna háttarlags eða hátternis þátttakenda í ferðinnni eða vegna annarra aðstæðna sem rekja má til þeirra eigin gjörða. Þátttakendur kunna að þurfa að skrifa undir yfirlýsingu þess efnis en að öðrum kosti teljast kaup og þátttaka í ferðinni nægilegur vottur þess efnis að þátttakendur geri sér grein fyrir því að öllum ævintýraferðum og allri útivist fylgir ákveðin áhætta sem þátttakendur taka sér á hendur með þátttöku.

Click here for English