6 daga kayakferð, ganga og útsýnisferð á Breiðafirði.
Erfiðleikastig 3+ af 5 mögulegum
Ævintýrið hefst snemma frá Reykjavík með akstri til Stykkishólms þar sem við slökum á og förum yfir komandi þriggja daga kayakferð. Næsta morgun leggjum við í hann og fylgjum hagstæðu veðri út á einstakann Breiðafjörðinn. Fjörðurinn er á milli Snæfellsnes og Vestfjarðakjálkans og hann prýða óteljandi fallegar eyjar og sker í hinum ýmsustu stærðum og lögun, Breiðafjörðurinn er eitt skemmtilegasta kayakleiksvæði Íslands. Við róum á milli eyjanna og förum í land þegar tækifæri gefast. Við tökum ákvarðanir um hvar næsti náttstaður verður á morgnanna áður en lagt er í róður dagsins.
Eftir þriggja daga róður tökum við land við Stykkishólm að kvöldi fjórða dags. Frá Stykkishólmi ökum við svo eftir Snæfellsnesi, finnum góðan náttstað og sláum upp tjöldunum. Daginn eftir könnum við töfrandi víkur, sjávarhamra og strandir Snæfellsness og eftir að við höfum drukkið í okkur sýn þessara náttúruperla ökum við að rótum Snæfellsjökuls. Síðasti náttstaður okkar verður á Arnarstapa og um kvöldið förum við í fallega göngu yfir á Hellna og fáum okkur margrómaða fiskisúpu á Fjöruhúsinu. Morguninn eftir ökum við til Reykjavíkur og komum í bæinn um hádegi.
Þessi ferð kemur til með að sýna þér Ísland á einstakan hátt sem ekki er hægt að nálgast á annan hátt.
Öruggar brottfarir 2013 fyrir minnst 4 þátttakendur:
18.júní
16.júlí
13.ágúst
Ferðin hefst frá Reykjavík kl. 8:00 þegar þátttakendur eru sóttir á hótel. Vinsamlegast sjáið til þess að vera tilbúin með allan farangurinn þegar þið verðið sótt.
Smáatriði:
Verð: 239.990 kr. á mann
Innifalið: Akstur til og frá Reykjavík, leiðsögumaður og allur nauðsynlegur búnaður fyrir sjókayak, tjald og öll áhöld til eldamennsku. Hægt er að leigja ef þess þarf dýnu, svefnpoka og kodda. Það þarf að láta okkur vita með fyrirvara ef á að leigja búnað.
Innifalinn matur: Hádegis og kvöldverður á fyrsta degi, morgunverður, hádegisverður og kvöldverður 2.,3.,4. og 5. degi og svo morgunverður á degi 6.
Vegalengd frá Reykjavík: 250 km.
Lengd ferðar: 6 dagar.
Í boði: Frá júlí til ágúst (fer eftir veðri), sjá öruggar brottfarir að ofan.
Lágmarksþátttaka: 4 manns.
Aldurstakmark: 18 ára.
Takið með ykkur: Hlýjan útivistarfatnað; föðurland (síðbuxur og síðermabol), föt til skiptana og sundföt.... takið allt sem þið þurfið í 6 daga ferð við sjóinn.
Smellið hér fyrir afbókunarstefnu okkar Smellið hér fyrir útbúnaðarlista.
Fyrirvari: Allar kayakferðir eru farnar á ábyrgð þátttakenda í henni. Arctic Rafting tekur sér ekki á herðar neina ábyrgð vegna slysa sem verða vegna háttarlags eða hátternis þátttakenda í ferðinnni eða vegna annarar aðstæðna sem rekja má til þeirra eigin gjörða. Þátttakendur kunna að þurfa að skrifa undir yfirlýsingu þess efnis en að öðrum kosti teljast kaup og þátttaka í ferðinni nægilegur vottur þess efnis að þátttakendur geri sér grein fyrir því að öllum ævintýraferðum og allri útivist fylgir ákveðin áhætta sem þátttakendur taka sér á hendur með þátttöku. Click here for English