Fjord Serenity Summer Edition

Sun Mán Þri Mið Fim Fös Lau
5000 ISK
Open the calendar popup.
2
14990 ISK
93,47 EUR
127,40 USD
ISK
93,47 EUR
127,40 USD
Karfa
Heildarverð viðskipta 0 ISK
0,00 EUR
0,00 USD
Bookmark and Share

Fjarðakyrrð - Sjókayak í Hvalfirði

Kayakróður í Hvalfirði
Erfiðleikastig 2 af 5 mögulegum

Ferð þessi mun sýna þér fegurð og rósemd Hvalfjarðarins í stöðugum og liprum bátum. Þátttakendur þurfa ekki að hafa fyrri reynslu af kajakróðri því sérþjálfaðir leiðsögumenn kenna grundvallaratriðin áður en haldið er af stað. Róið er meðfram ströndinni, framhjá klettabökkum og fallega grónu landinu. Við göngum á land á eyju einni og róum framhjá gömlu bryggjunni. Hér er íslenska sumarsins notið til hins ýtrasta með róandi afþreyingu á einum allra fegursta stað landsins.

Þessi ferð á sér örugga brottför fyrir minnst 2 þátttakendur kl. 9:00 á mánudögu, fimmtudögum og laugardögum frá Fjallakofanum á Laugavegi 11, frá 15. maí til 15. september.  Aðra daga þurfum við  minnst 4 þátttakendur.


Smáatriði:


Verð: 14.990 kr á mann ef komið er í Hvammsvík.  19.990 kr á mann með akstri frá Reykjavík.

Innifalið:
Kayaksigling, allar sérhæfður búnaður til kayaksiglinga ásamt leiðsögn og nesti.

Í boði frá maí til september (Ath. Mjög háð veðri).

Fjarlægð frá Reykjavík:
50 km

Lengd ferðar: 3-4 klst. 5-6 klst. með akstri frá Reykjavík.

Lágmark: 2 þátttakendur á völdum vikudögum annars 4 þátttakendur. Hámark: 12 þátttakendur.

Aldurstakmark: 16 ár.

Þátttakendur verða að taka með sér: Handklæði, föt til skiptanna, sundföt og hlýja undirföt (ull/flís, langbrækur og síðerma bol).



Click here for English