Karfa
Heildarverð viðskipta 0 ISK
0,00 EUR
0,00 USD
Bookmark and Share

Búnaðarlisti fyrir sjókayak


Fatnaður
- 2 x föðurland, síðbuxur og síðermabolur (mælum með ull)
- fóðraður jakki
- 2 x hlýjir sokkar
- vatnsheldur jakki og buxur
- flíspeysa
Útlimir
- flís- eða ullarvettlingar
- innanundir hanskar
- 2 x húfur
- 1 x þunnir innanundir sokkar
- 2 x göngusokkar
Tjaldbúnaður
- uppblásin tjalddýna sem tekur lítið pláss (hægt að leigja)
- Svefnpoki (hægt að leigja) 3 árstíða
Annar mikilvægur búnaður!
- 6 x þurrpokar (hægt að leigja).  Ekki of stóra því þeir þurfa að passa í kayakinn og þurfa að vera næginlega vatnsheldir til að vera ofan á kayaknum, einn þarf að passa utan um svefnpokann.
- klukka með vekjaraklukku.
- lítið þurrhandklæði
- höfuðljós og batterí (fyrir lestur)
- bækur í afslöppun
- sólarvörn
- sólgleraugu (mjög mikilvægt)
- hitabolli
- hitabrúsi
- vasahnífur
- 3 x vatnsflöskur
- rötunarbúnaður, leiðsögumaðurinn verður einnig með, en ykkur frjálst að koma með ykkar eigin
- bakpoki 20-30L nægilega lítill til þess að passa ofan í kayakinn
- gönguskór
- 10 metra spotti til þess að hengja upp föt til þerris
Kayakbúnaður
- kayak sem Arctic Adventures útvegar
- þurrtoppur sem Arctic Adventures útvegar
- flotvesti sem Arctic Adventures útvegar
- kayaksvunta sem Arctic Adventures útvegar
- ár sem Arctic Adventures útvegar (AT touring paddles)
- kayakbuxur, vatnsheldar buxur hannaðar fyrir róður
- vaðskór til að róa í
- áralúffur (Pogies), hanskar sem festast við árina.