Á lygnum sjó - Sjókayakferð í Hvalfirði
Erfiðleikastig 2 af 5 mögulegum
Í ferðinni fá þátttakendur að kynnast kayak íþróttinni á þægilegan og öruggan hátt í fallegu umhverfi.
Há og tignarleg fjöll gnæfa yfir Ísafjörð en þau sjást frá nýju og spennandi sjónarhorni þegar róið er hring um fjörðinn á sjókayak. Hinar ýmsu fuglategundir eru sjáanlegar og stundum eru einnig vingjarnlegir og forvitnir selir sem slást með í för. Þetta er því einstök náttúru upplifun í stórbrotnu landslagi.
Byrjað er á stuttri kennslu í róðri og síðan eru kayakarnir flotsettir á bak við Sjóminjasafnið í Neðstakaupstað. Notast er við mjög stöðuga kayaka sem henta byrjendum vel en einnig eru í boði kayakar fyrir lengra komna.
Þessi ferð á sér staðfesta brottför alla daga kl. 9:30 fyrir minnst 2 þátttakendur.
Smáatriði:
Verð: 7.990 kr á mann.
Innifalið í verði: Akstur frá Ísafjarðarflugvelli, kayakbúnaður og leiðsögn.
Tímabil: Allt árið.
Lágmarksþátttaka: 2 þátttakendur.
Brottför: Á hverjum degi klukkan 9:30 frá upplýsingamiðstöð Ísafjarðar eða frá Ísafjarðarflugvelli í tengslum við morgunflug. Athugið að einnig er hægt að semja um brottför á öðrum tíma dags.
Aldurstakmark: 12 ár.
Lengd: 2,5 klst.
Búnaður: Hlýr fatnaður sem má blotna. Gott að vera með föt til skiptana, þó mjög ólíklegt sé að maður blotni mikið.
Önnur afþreying: Ísafjörður hefur upp á margt að bjóða. Við mælum með huggulegri göngu um bæinn sem hefur að geyma litrík og fallega uppgerð gömul hús, frábært úrval af handverki og veitingarstaði sem bjóða upp á ljúffenga og ferska sjávarrétti. Einnig er heimsókn á Sjóminjasafnið í senn fræðandi og skemmtileg dægradvöl.
Fyrirvari: Allar kayakferðir eru farnar á ábyrgð þátttakenda í henni. Arctic Rafting tekur sér ekki á herðar neina ábyrgð vegna slysa sem verða vegna háttarlags eða hátternis þátttakenda í ferðinnni eða vegna annarra aðstæðna sem rekja má til þeirra eigin gjörða. Þátttakendur kunna að þurfa að skrifa undir yfirlýsingu þess efnis en að öðrum kosti teljast kaup og þátttaka í ferðinni nægilegur vottur þess efnis að þátttakendur geri sér grein fyrir því að öllum ævintýraferðum og allri útivist fylgir ákveðin áhætta sem þátttakendur taka sér á hendur með þátttöku. Click here for English