Arctic Rafting býður uppá flúðasiglingar á þremur stórfljótum á Suðurlandi: Hvítá, Markarfljóti og Hólmsá.
RiverFun: Smelltu hér til að fræðast meira um vinsælustu ævintýraferð á Íslandi, flúðasiglingu niður Hvítá. Hvítá er stórskemmtileg ferð og á Drumboddsstöðum bjóðum við upp á heita potta, saunu, bar og veitingasal. Fullkomin fjölskyldu eða starfsmannaferð.
RiverAdventure: Smelltu hér til að kynna þér siglingu gegnum hin ægifögru gljúfur Markarfljóts. Ertu með erlenda gesti í heimsókn sem þig langar að sýna stórkostlega náttúru Íslands eða langar þig til að bera augum einhvern fegursta stað landsins? Hér siglum við framhjá Þórsmörk umkringd jöklum.
RiverAction: Smelltu hér til að fá nánari upplýsingar um klikkaða tryllingsferð niður Hólmsá. Tilvalin ferð fyrir steggja og gæsapartý og alla aðra sem eru að leita að adrenalíni og æsing!
Hvað er flúðasigling?
Þátttakendur sitja 4-12 saman í uppblásnum raft-báti ásamt leiðsögumanni. Í sameiningu þræðir hópurinn flúðir og gljúfur fljóta Suðurlands. Allir klæðast sérstökum blautgöllum, björgunarvestum og hjálmum. Því til viðbótar fá þátttakendur blautskó og gott getur verið að taka með sér ullarsokka eða góða göngusokka (ekki nauðsynlegt). Hægt er að velja um mismunandi erfiðleikastig siglinga, frá Class II til Class IV+.

