Rafting á Vestari Jökulsá í Skagafirði
Erfiðleikastig 2+ af 5 mögulegum – Auðveld / Fjölskylduferð
Fátt tengir fólk meira saman og dýpkar vinskap en fjölskyldu ævintýraferðir. Að heyra um ævintýri og þjóðsögur árinnar og jafnframt njóta spennu flúðasiglinga gefur af sér bæði skemmtilega og lærdómsríka reynslu fyrir alla fjölskylduna. Við hjá Arctic Rafting gerum okkur fulla grein fyrir nauðsyn þess að skapa eftirminnilegt ævintýr fyrir börn sem og fullorðna sem vilja deila ógleymanlegri og skemmtilegri upplifun.
Fjölskylduferðin sem við bjóðum uppá í Vestari Jökulsá, í gegnum yfirþyrmandi og töfrandi gljúfur, er ein af okkar fallegustu og skemmtilegustu ferðum! Þegar allir eru mættir á Hafgrímsstaði byrjum við á því að úthluta þátttakendum nauðsynlegan og passlegan búnað og veitum aðstoð ef þarf. Frá Hafgrímsstöðum þurfum við rétt að keyra í 15 mínútur inn Vesturdal þar sem ævintýrið hefst með því að fara yfir öryggisatriði og hvernig skuli beita sér í ánni.
Þaðan leggjum við í hann, smjúgum í gegnum fallegt landslag Vesturdals og fljótum inn í töfrandi Jökulsárgljúfrin. Inn á milli flúða gæðum við okkur á heitu kakói gert úr heitu vatni sem bubblar rétt við árbakkann! Það gæti vel verið að þú ákveðir að fleygja þér fram kletti ofan í ána, farir í vatnsslag eða bara njótir þess að fljóta niður ána og njótir gullfallegs útsýnisins í gljúfrinu.
Staðfestar brottfarir fyrir minnst 2 þátttakendur frá 15.maí til 31. ágúst. Fyrir minnst 4 þátttakendur frá 1. september til 10. september.
Frá Hafgrímsstöðum í Skagafirði: sunnudaga - föstudaga kl. 9:00. Laugardaga kl. 10:00 og 14:00
Frá Varmahlíð í Skagafirði: hálftíma fyrir brottfaratíma frá Hafgrímsstöðum.
Ath.: láta verður vita fyrirfram ef þið þurfið keyrslu frá Varmahlíð.
Smáatriði:
Verð: 7.990 kr á mann
Fyrir þá sem koma sjálfir er hægt að bæta við Víkinga grilli eftir ferðina, grillað lamb með meðlæti: 2.990 ISK (lágmark 4 manns).
Vegalengd frá Reykjavík: 294 km, 3,5 klst í keyrslu.
Tími ferðar: 3-4 klst (1-2 klst á ánni).
Minnst: 2 þátttakendur frá 15. maí til 31. ágúst. 4 þátttakendur frá 1. september til 10.september.
Mest: 70 þátttakendur.
Aldurstakmark: 12 ára, í fylgd með fullorðnum.
Takið með ykkur:
* mjög hlý föt til að vera í innan undir raft gallanum, reiknaðu með að öll fötin þín innan undir geta blotnað í gegn.
* Verið bara í ull, flís eða gerviefni, ENGAN BÓMULL!
* föðurland og hlýjan bol næst líkamanum.
* hlýja ullar eða flíspeysu.
* hlýjar buxur.
* Þykka hlýja ullarsokka.
* handklæði og sundföt.
Aukalega: Vatnsheld myndavél: 2.500 ISK
Samningsákvæði: Allar flúðasiglingarnar eru farnar á ábyrgð þátttakenda í hana. Arctic Adventures ber ekki á nokkurn hátt ábyrgð vegna slysa sem rekja mega til gáleysis eða grandaleysis þátttakenda eða ekki er hægt að rekja með beinum hætti til stórkostlegs gáleysis eða ásetnings starfsmanna fyrirtækisins. Þátttakendum kann að vera gert að skrifa undir ábyrgðaryfirlýsingu þess efnis, neitun á slíkri undirskrift fyrirgerir þátttakanda rétt til ferðar. Þrátt fyrir að ekki sé sérstaklega undirrituð slík yfirlýsing gildir fyrirvari þessi vegna allra ferða sem bókaðar eru hjá Arctic Adventures. Með kaupum og/eða þátttöku í ferðum á vegum fyrirtækisins hafa þátttakendur staðfest að þeir gera sér grein fyrir þeirri áhættu sem fylgir slíkum ferðum og að þeir eru á eigin ábyrgð.
Click here for English.