River Adventure

Sun Mán Þri Mið Fim Fös Lau
10000 ISK
12
19990 ISK
124,65 EUR
169,90 USD
ISK
124,65 EUR
169,90 USD
Karfa
Heildarverð viðskipta 0 ISK
0,00 EUR
0,00 USD
Bookmark and Share

River Adventure - Rafting á Markarfljóti

Rafting á Markarfljóti

River Rafting á Markarfljóti (aðeins í boði fyrir hópa)
Erfiðleikastig: 3+ af 5 mögulegum.

Sigling á Markarfljóti er ægifögur upplifun. Ekið er upp með Fljótshlíð, yfir urð, grjót og ár í sérútbúnum bifreiðum uns við stöðvum við Einhyrning og setjum þar bátana ofan í fljótið. Siglingin er viðburðarík og krefjandi fyrir þátttakendur enda Markarfljót nánast endalaus uppspretta meðalstórra aldna og flúða. Við siglum gegnum 50 metra há gljúfrin með jökla á þrjár hliðar og fljótum framhjá Þórsmörk. RiverAdventure er sannarlegasta fallegasta siglingin sem við bjóðum upp á.

Smáatriði:

Verð:  19.990 kr. á mann. Verð með akstri frá Reykjavík: 29.990 kr. á mann.

Einungis í boði fyrir hópa, 12 manns eða fleiri.

Í boði frá: 10. júní til 31.ágúst (Ath. háð veðri).

Lágmark: 12 manns. Hámark: 70 manns.

Lengd ferðar: 6-7  klst.

Aldurstakmark: 16 ár.

Þátttakendur verða að taka með sér: Handklæði, föt til skiptanna, sundföt og hlýja peysu (flís/ull).

 Fjarlægð frá RVK: 140 km.


Ath: Hægt er að enda siglinguna í Húsadal í Þórsmörk

Samningsákvæði: Allar flúðasiglingarnar eru farnar á ábyrgð þátttakenda í hana.  Arctic Adventures ber ekki á nokkurn hátt ábyrgð vegna slysa sem rekja mega til gáleysis eða grandaleysis þátttakenda eða ekki er hægt að rekja með beinum hætti  til stórkostlegs gáleysis eða ásetnings starfsmanna fyrirtækisins. Þátttakendum kann að vera gert að skrifa undir ábyrgðaryfirlýsingu þess efnis, neitun á slíkri undirskrift fyrirgerir þátttakanda rétt til ferðar. Þrátt fyrir að ekki sé sérstaklega undirrituð slík yfirlýsing gildir fyrirvari þessi vegna allra ferða sem bókaðar eru hjá Arctic Adventures. Með kaupum og/eða þátttöku í ferðum á vegum fyrirtækisins hafa þátttakendur staðfest að þeir gera sér grein fyrir þeirri áhættu sem fylgir slíkum ferðum og að þeir eru á eigin ábyrgð.