River Fun Hvítá - Afternoon Departure

Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
1390 ISK
300 ISK
3000 ISK
Departure Time:

Open the calendar popup.
1
7990 ISK
52,73 EUR
ISK
52,73 EUR
Shopping Cart
Total: 0 ISK
0,00 EUR
Bookmark and Share

RiverFun - Rafting á Hvítá

Rafting á Hvítá  neðan við Gullfoss
Erfiðleikastig 2+ af 5 mögulegum.

Hvítá er fallegt og hressilegt fljót í klukkutíma fjarlægð frá Reykjavík, þar hafa nú í 20 ár verið starfræktar vinsælustu flúðasiglingar landsins frá bátahúsinu okkar, Drumbó. Silgd er 7 kílómetrar leið gegnum falleg gljúfur og  margvíslegar flúðir. Siglingar á Hvítá henta öllum og nálægðin við Gullna hringinn og Reykjavík hafa skapað ánni gríðarmiklar vinsældir. Siglingin hefst við Veiðistaðinn og liðast niður fljótið gegnum flottar öldur og miðlungs stórar holur. Silgt er gegnum sérstæðar bergmyndanir í Brúarhlöðum og sé þess óskað fá ræðarar að stökkva þar af kletti í ánna. Skemmtileg og fjölbreytt sigling fyrir alla sem eru í ævintýraleit!

Örugg brottför alla daga kl. 12:00 frá Cintamani Center á Laugavegi 11 eða frá Drumboddsstöðum kl. 14:00 sé hist á staðnum, og svo fyrir minnst 4 kl. 09:00 frá Cintamani Center á Laugavegi 11 eða frá Drumboddstöðum kl. 10:00. Gildir á tímabilinu 1.júní til 31. ágúst.

Smáatriði:
Verð: Sjá bókunarkassa að neðan.
Innifalið í verði er súpa, brauð, sauna og heitir pottar eftir siglingu (ath. pottarnir eru tveir og eru upphitaðir með rafmagni).

Kíktu líka á úrvalið af combo ferðum sem blanda river rafting við fleiri ævintýri.

Í boði frá maí til október (Ath. Háð veðri). Akstur frá Reykjavík og flestum gististöðum á Suðurlandi er í boði sé þess óskað. Fjarlægð frá Reykjavík: 100 km. Lengd ferðar 3 / 7 klst. Lágmark: 2. Hámark 200. Aldurstakmark: 12 ár. Hægt er að bæta hádegismat við þessa verð fyrir 1.490 kr. ISK. Þátttakendur verða að taka með sér: handklæði, föt til skiptana og hlýja peysu.

Kort af leiðinni á Drumbó

Mikilvægar upplýsingar um ferðina!

Ath:
Á Drumbó er veitingasalur og bar, þar er boðið upp á hina goðsagnakenndu grillveislu Arctic Rafting “Volcanic BBQ” fyrir hópa. Þar er einnig hægt að halda hádegisverðarfund eða teiti eftir matinn.

Hvað er flúðasigling?
Þátttakendur sitja 4-12 saman í uppblásnum raft-báti ásamt leiðsögumanni. Í sameiningu þræðir hópurinn flúðir og gljúfur fljóta Suðurlands. Allir klæðast sérstökum blautgöllum, björgunarvestum og hjálmum. Því til viðbótar fá þátttakendur blautskó og gott getur verið að taka með sér ullarsokka eða góða göngusokka (ekki nauðsynlegt). Hægt er að velja um mismunandi erfiðleikastig siglinga, frá Class II til Class IV+.

Fyrirvari: Allar rafting ferðir eru farnar á ábyrgð þátttakenda í henni. Arctic Rafting tekur sér ekki á herðar neina ábyrgð vegna slysa sem verða vegna háttarlags eða hátternis þátttakenda í ferðinnni eða vegna annarar aðstæðna sem rekja má til þeirra eigin gjörða. Þátttakendur kunna að þurfa að skrifa undir yfirlýsingu þess efnis en að öðrum kosti teljast kaup og þáttaka í ferðinni nægilegur vottur þess efnis að þátttakendur geri sér grein fyrri því að öllum ævintýraferðum og allri útivist fylgir ákveðin áhætta sem þátttakendur taka sér á hendur með þátttöku.

Click here for English