River Action Rafting on Hólsmá

Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
4000 ISK
10
24990 ISK
164,92 EUR
ISK
164,92 EUR
Shopping Cart
Total: 0 ISK
0,00 EUR
Bookmark and Share

River Action - Rafting á Hólmsá

Rafting á Hólmsá rétt hjá Vík í Mýrdal
Erfiðleikastig 4+ af 5 mögulegum.

Hólmsá er æsileg sigling og hentar þeim sem eru í leit að stanslausu adrenalíni. Hér er allt það fjör sem vatnsföll geta búið til saman komið á einn stað. Ofurstórar öldur, fossar og holur. Hólmsá er hörku, hörku raftingferð sem er ekki hægt að jafna við neitt á Íslandi. Þetta er fyrir þá sem þora, geta og hika ekki! Það er góð aðstaða til að grilla eftir siglingu og fara í heitan pott. Hægt er að gista í sumarhúsum eða tjöldum í Hrífunesi.

Smáatriði:
Verð: Sjá bókunarkassa að neðan.
 
Fyrri reynsla af rafting er nauðsynleg.

Í boði frá maí til nóvember (Ath. Háð veðri). Pick–up frá Reykjavík og flestum gististöðum á Suðurlandi er í boði sé þess óskað. Fjarlægð frá Reykjavík: 230 km. Lengd ferðar 5/ 12 klst. Lágmark: 10 Hámark 56.. Aldurstakmark: 18 ár. Hægt er að bæta við hádegismat við þessa verð fyrir 1.500 kr. Þáttakendur verða að taka með sér: Handklæði, hlýja peysu, sundföt og föt til skiptana.

Fyrirvari: Allar rafting ferðir eru farnar á ábyrgð þátttakenda í henni. Arctic Rafting tekur sér ekki á herðar neina ábyrgð vegna slysa sem verða vegna háttarlags eða hátternis þátttakenda í ferðinnni eða vegna annarar aðstæðna sem rekja má til þeirra eigin gjörða. Þátttakendur kunna að þurfa að skrifa undir yfirlýsingu þess efnis en að öðrum kosti teljast kaup og þáttaka í ferðinni nægilegur vottur þess efnis að þátttakendur geri sér grein fyrri því að öllum ævintýraferðum og allri útivist fylgir ákveðin áhætta sem þátttakendur taka sér á hendur með þátttöku.

Click her for English