Shopping Cart
Total: 0 ISK
0,00 EUR
Bookmark and Share

Nánari upplýsingar um raftingferðir Arctic Rafting

Þegar þú kemur í raftingferð með Arctic Rafting á Hvítá þarftu að vita að…
 
· ÞÁTTTAKA ÞÍN ER Á EIGIN ÁBYRGÐ.
· Þú mátt ekki vera undir áhrifum áfengis eða annara vímugjafa
· Þú verður skrifað undir ábyrgaðaryfirlýsingu þess efnis á staðnum og greiða fyrir ferðina áður en hún hefst (hægt að greiða með debit/kredit á Drumbó).
· Þú þarft að róa bátnum
· Þú þarft hugsanlega að halda á bátnum.
· Þú gætir fallið útbyrðis og þurft að synda að bátnum.
· Það er mjög áríðandi að þú fylgir skipunum stjórnenda alla ferðina.

…Svo verður þú líka að muna eftir því að taka með þér…

    * Sundföt
    * Hlýja peysu sem má blotna
    * Handklæði

…og þú kemst á Drumboddsstaði með því að…(98 km frá RVK)

Aka þjóðveg nr.1 frá Reykjavík framhjá Hveragerði og beygja svo til vinstri upp þjóðveg 35 áður en þú kemur á Selfoss. Þú ekur þjóðveg nr. 35 í um 35 mínútur þar til þú ert kominn fram hjá Reykholti.

Svo eru tvær leiðir:

Fyrir venjulega bíla og jeppa: Þá beygir þú ekki við Bræðratungu heldur ekur 4 km til viðbótar og beygir til hægri við Arctic Rafting skilti eftir Faxa. Þaðan eltir þú skilti heim að Drumbó.

Fyrir fólksflutningabíla: Þá beygir þú til hægri 1km eftir Reykholt þar sem merkt er “Bræðratunga” inn á veg nr. 359 og tekur svo vinstri beygju inn veg nr. 358. Eftir það fylgir þú skiltunum heim á hlað til okkar!

Click here to see directions to the Drumbó Base Camp.