Karfa
Heildarverð viðskipta 0 ISK
0,00 EUR
0,00 USD
Bookmark and Share

Hvernig á að komast á Drumboddsstaði

Drumboddstaðir (alltaf kallaðir Drumbó) eru 98 km frá Reykjavík og tekur um 70 mínútur að aka þangað.

Þú kemst á Drumboddsstaði með því að…

Aka þjóðveg nr.1 frá Reykjavík framhjá Hveragerði og beygja svo til vinstri upp þjóðveg 35 áður en þú kemur á Selfoss. Þú ekur þjóðveg nr. 35 í um 35 mínútur þar til þú ert kominn fram hjá Reykholti.

Svo eru tvær leiðir:

    * Fyrir venjulega bíla og jeppa: Þá beygir þú ekki við Bræðratungu heldur ekur 4 km til viðbótar og beygir til hægri við Arctic Rafting skilti eftir Faxa. Þaðan eltir þú skilti heim að Drumbó.
    * Fyrir fólksflutningabíla: Þá beygir þú til hægri 1 km eftir Reykholt þar sem merkt er “Bræðratunga” inn á veg nr. 359 og tekur svo vinstri beygju inn veg nr. 358. Eftir það fylgir þú skiltunum heim á hlað til okkar!