Kanóferð á Hvítá neðan við Gullfoss
Erfiðleikastig 3+ af 5 mögulegum.
Kanóferðir eru ný tegund afþreyingar á Íslandi. Kanóarnir eru uppblásnir og losa sig sjálfir af vatni (svo að þeir sökkva ekki þó þeir velti). Fyrri reynsla af slíkum siglingum er því ekki nauðsynleg. Tveir til þrír sitja saman í hverjum bát og stýra honum niður flottar flúðir á Hvítá í klukkutíma fjarlægð frá Reykjavík. Silgdir eru 7 kílómetrar gegnum falleg gljúfur og margvíslegar flúðir og stoppað í Brúarhlöðum þar sem hægt er að fleygja sér fram af klettum ofan í ánna. Leiðsögumenn á raft eða kajak fylgjast með framgangi mála skammt frá en grípa ekki inn í nema virkilega sé þörf, hér á maður að redda sér sjálfur.
Við mælum með þessari ferð fyrir fólk í góðu líkamlegu ástandi sem vill fá ríka upplifun af náttúrunni, flúðunum og eigin getu!
Smáatriði:
Verð: Sjá bókunarkassa að neðan.
Innifalið í verði er súpa, brauð, sauna og heitir pottar eftir siglingu
(ath. pottarnir eru tveir og eru upphitaðir með rafmagni).
Þessi ferð á sér örugga brottför kl. 12:00 alla dag sumars frá Cintamani Center á Laugavegi 11, frá fyrsta júní til fyrsta september.
Höfuðstöðvar:
Drumboddsstaðir (Drumbó), Biskupstungum, rúmlega klukkustund frá RVK. Í boði frá maí til október (Ath. háð veðri). Pick–up frá Reykjavík og flestum gististöðum á Suðurlandi er í boði sé þess óskað. Fjarlægð frá Reykjavík: 100 km. Lengd ferðar 3 / 7 klst. Lámark: 4. Hámark 12. Aldurstakmark: 18 ár. Hægt er að bæta hádegismat við þessa verð fyrir 1.490 kr. ISK. Þáttakendur verða að taka með sér: handklæði, föt til skiptana, sundföt og hlýja peysu.
Kort af leiðinni á Drumbó.
Mikilvægar upplýsingar um ferðir á Hvítá.
Ath: Ferðin hentar einnig sérlega vel fyrir þá sem silgt hafa Hvítá eða sambærilegt fljót áður í raft og vilja prófa eitthvað nýtt og spennandi.
Ath: Ef einhverjir innan hóps kjósa að fara í flúðasiglingu og aðrir í kanósiglingu þarf einungis að láta okkur vita fyrirfram.
Hvað er kanó?
Kanó er uppblásinn tveggja manna bátur með tveimur þóftum. Hann er sérstaklega búinn uppblásnu gólfi og losar sjálfan sig af vatni. Honum er róið áfram af tveimur farþegum. Kanó er mun minni er raft-bátur og fer því dýpra í öldur og holur, þ.e. flúðir stækka og adrenalín flæðir í ríkara mæli um æðar ferðalanga.
Fyrirvari: Allar kanóferðir eru farnar á ábyrgð þátttakenda í henni. Arctic Rafting tekur sér ekki á herðar neina ábyrgð vegna slysa sem verða vegna háttarlags eða hátternis þátttakenda í ferðinnni eða vegna annarar aðstæðna sem rekja má til þeirra eigin gjörða. Þátttakendur kunna að þurfa að skrifa undir yfirlýsingu þess efnis en að öðrum kosti teljast kaup og þáttaka í ferðinni nægilegur vottur þess efnis að þátttakendur geri sér grein fyrri því að öllum ævintýraferðum og allri útivist fylgir ákveðin áhætta sem þátttakendur taka sér á hendur með þátttöku.
Click here for English