Arctic Rafting býður uppá flúðasiglingar á fimm stórfljótum á Íslandi: Hvítá og Markarfljóti á Suðurlandi og Jökulsá austari og Jökulsá vestari á Norðurlandi.
RiverFun: Smelltu hér til að fræðast meira um vinsælustu ævintýraferð á Íslandi, flúðasiglingu niður Hvítá. Hvítá er stórskemmtileg ferð og á Drumboddsstöðum bjóðum við upp á heita potta, saunu, bar og veitingasal. Fullkomin fjölskyldu eða starfsmannaferð.
RiverRide: Smelltu hér til að sjá nánari upplýsingar um kanóferðir á Hvítá. Er fjölskyldan að fara í rafting en þig langar í aðeins meira fjör?
Wonderful West: Smelltu hér til að sjá nánari upplýsingar um flúðasiglingar á Jökulsá vestari á Norðurlandi. Þessi mun fara með þig og þína á vit ævintýranna, styrkja böndin og skilja eftir sig minningar sem seint verður gleymt. Ferðin hentar því sérstaklega vel fyrir einstaklinga og hópa af öllum stærðum og gerðum t.d. hvataferð, starfsmannaferð eða fjölskylduferð.
RiverAdventure: Smelltu hér til að kynna þér siglingu gegnum hin ægifögru gljúfur Markarfljóts. Ertu með erlenda gesti í heimsókn sem þig langar að sýna stórkostlega náttúru Íslands eða langar þig til að bera augum einhvern fegursta stað landsins? Hér siglum við framhjá Þórsmörk umkringd jöklum.
Beast of the East: Smelltu hér til að nálgast nánari upplýsingar um eina mögnuðustu og mest krefjandi straumá á Íslandi, Jökulsá Austari. Hér færðu ekki aðeins einstakt tækifæri á að upplifa stórbrotna náttúru Íslands frá einstöku sjónarhorni heldur gefst þér og þínum einnig tækifæri á því að glýma við grimm náttúruöflin með reyndum leiðsögumanni og hjálp félaganna. Hér er um að ræða hina fullkomnu blöndu af náttúrufegurð, hreyfingu ,félagsskap og stöðugu adrenalin streymi!
RiverRush: Smelltu hér til að sjá nánari upplýsingar um þriggja daga raftingferð á Austari Jökulsá!
Hvað er flúðasigling? Þátttakendur sitja 4-12 saman í uppblásnum raft-báti ásamt leiðsögumanni. Í sameiningu þræðir hópurinn flúðir og gljúfur fljóta Suður- eða Norðurlands. Allir klæðast sérstökum blautgöllum, björgunarvestum og hjálmum. Því til viðbótar fá þátttakendur blautskó og gott getur verið að taka með sér ullarsokka eða góða göngusokka (ekki nauðsynlegt). Hægt er að velja um mismunandi erfiðleikastig siglinga, frá Class II til Class IV+.
Click here for English