Gljúfursund á flekamótunum í Silfru á Þingvöllum. Erfiðleikastig 2 af 5 mögulegum: Auðvelt Gjáin Silfra er eitt af best geymdu leyndardómum Íslands enda er hún staðsett í hjarta Þingvalla og býður gljúfursund á einum af 10 flottustu köfunarstöðum í heiminum. í Silfru er nefnilega eitt allra besta útsýni neðan vatnsmáls sem fyrirfinnst á þessari jörð. Snorkling í Silfru gefur einstakt tækifæri til að bera augum hraunmyndanir og yfirþyrmandi fegurð sprungunnar neðan vatnsmáls. Við látum okkur svífa, þyngdarlaus með letilegum straumnum og í gegnum gleraugun er umhverfið kristaltært. Into the Blue er afslappandi en jafnframt framandi upplifun á umhverfi sem fæstir sjá nokkurn tíman annars staðar en í draumum sínum.
Kíktu líka á
Black & Blue comboferðina sem felur í sér bæði snorkeling í Silfru, nesti, akstur og hellaferð í Gjábakkahelli á frábæru verði.
Örugg brottför alla daga kl. 13:30 - 14:00 frá Reykjavík og 10:00 eða 14:30 ef hist er á Þingvöllum við upplýsingamiðstöðina. Gildir frá 15.maí til 15.september. Smáatriði: Verð: 9.990 kr á mann ef hist er á Þingvöllum. 12.990 kr á mann með akstri frá Reykjavík. Fyrri reynsla af íþróttinni er ekki nauðsynleg.
Í boði: frá maí til september (Ath. Háð veðri).
Fjarlægð frá Reykjavík: 50 km.
Lengd ferðar: 2 klst. ef hist er á Þingvöllum. 4 klst. með akstri til og frá Reykjavík.
Lágmark: 2 þátttakendur. Hámark: 20 þátttakendur.
Aldurstakmark: 14 ár.
Þátttakendur verða að taka með sér: hlý undirföt (langbrækur og síðerma bol úr flís/ull), ullarsokka, handklæði, föt til skiptana.
Hvað er snorkling? Ferðamenn synda í sérstökum fötum, íklæddir dún og þurrgöllum í kristaltæru bergvatni með öndunarpípu í munni sér svo hægt sé að njóta umhverfsins neðan vatnsborðsins. Allir hafa froskalappir og eiga því auðvelt með sund.
Fyrirvari: Allar ævintýraferðir eru farnar á ábyrgð þátttakenda í henni. Arctic Rafting tekur sér ekki á herðar neina ábyrgð vegna slysa sem verða vegna háttarlags eða hátternis þátttakenda í ferðinnni eða vegna annarra aðstæðna sem rekja má til þeirra eigin gjörða. Þátttakendur kunna að þurfa að skrifa undir yfirlýsingu þess efnis en að öðrum kosti teljast kaup og þátttaka í ferðinni nægilegur vottur þess efnis að þátttakendur geri sér grein fyrir því að öllum ævintýraferðum og allri útivist fylgir ákveðin áhætta sem þátttakendur taka sér á hendur með þátttöku. Click here for English