Deep Into The Blue

Sun Mán Þri Mið Fim Fös Lau
1500 ISK
2
29990 ISK
187,01 EUR
254,89 USD
ISK
187,01 EUR
254,89 USD
Karfa
Heildarverð viðskipta 0 ISK
0,00 EUR
0,00 USD
Bookmark and Share

Köfun í Silfru á Þingvöllum

Köfun á flekamótunum í Silfru á Þingvöllum.
Erfiðleikastig 4 af 5 mögulegum: Krefjandi

Gjáin Silfra er einn af best geymdu leyndardómum Íslands enda er hún staðsett í hjarta Þingvalla og er talin vera ein af 10 flottustu köfunarstöðum í heiminum. í Silfru er nefnilega eitt allra besta útsýni neðan vatnsmáls sem fyrirfinnst á þessari jörð. Köfun í Silfru er einstakt tækifæri til að bera augum hraunmyndanir og yfirþyrmandi fegurð sprungunnar neðan vatnsmáls. Við látum okkur svífa, þyngdarlaus með letilegum straumnum og í gegnum gleraugun er umhverfið kristaltært. Deep into the Blue er afslappandi en jafnframt framandi upplifun á umhverfi sem fæstir sjá nokkurn tíman annars staðar en í draumum sínum.

Til að geta kafað með okkur í Silfru verður þú hafa lokið PADI open water og allra helst reynslu af því að kafa í þurrgalla. 

Þessi ferð á sér örugga brottför kl. 9:00 alla morgna frá Fjallakofanum á Laugavegi 11, allt árið umkring.

Smáatriði:

Verð: 29.990 kr á mann.

Innifalið: allur sérhæfður búnaðir til köfunar og leiðsögn.
Í boði: allt árið (Ath. Háð veðri).
Fjarlægð frá Reykjavík: 45 km.
Lengd ferðar: 4 klst. án aksturs. 6 klst með akstri frá Reykjavík og tilbaka.
Lágmark: 1 þátttakandi. Hámark 10.
Aldurstakmark: 18 ár.
Þátttakendur verða að taka með sér: ullarnærföt (síðbrækur og síðerma bolur), föt til skiptana, hlýja sokka.
 Vinsamlegast athugið að það er skylda að haf lokið PADI open water eða sambærilegu námskeiði, við mælum samt með að ljúka einnig PADI advanced og hafa lokið þurrgalla námskeiði.

Click here for English