Köfun á flekamótunum í Silfru á Þingvöllum.
Erfiðleikastig 4 af 5 mögulegum: Krefjandi
Gjáin Silfra er ein af best geymdu leyndardómum Íslands enda er hún staðsett í hjarta Þingvalla og býður köfun í einum af 10 flottustu köfunarstöðum í heiminum. í Silfru er nefnilega eitt allra besta útsýni neðan vatnsmáls sem fyrirfinnst á þessari jörð. Köfun í Silfru er einstakt tækifæri til að bera augum hraunmyndanir og yfirþyrmandi fegurð sprungunnar neðan vatnsmáls. Við látum okkur svífa, þyngdarlaus með letilegum straumnum og í gegnum gleraugun er umhverfið kristaltært. Deep into the Blue er afslappandi en jafnframt framandi upplifun á umhverfi sem fæstir sjá nokkurn tíman annars staðar en í draumum sínum.
Til að geta kafað með okkur í Silfrum verður þú hafa lokið PADI open water og allra helst reynslu af því að kafa í þurrgalla. Hafir þú hvorugt þessara geturðu skráð þig á námskeið með því að senda póst á tinna@adventures.is
Þessi ferð á sér örugga brottför kl. 9:00 alla morgna frá Cintamani Center á Laugavegi 11, á sumrin frá fyrsta júní til fyrsta september.
Smáatriði:
Verð: Sjá bókunarkassa að neðan.
Nesti: 1.500 kr. (en auðvitað má koma með sitt eigið nesti : )
Í boði frá allt árið (Ath. Háð veðri). Akstur frá Reykjavík er í boði fyrir aukagjald sé þess óskað. Fjarlægð frá Reykjavík: 45 km. Lengd ferðar 6 klst. Lágmark: 2. Hámark 10. Aldurstakmark: 18 ár. Þátttakendur verða að taka með sér: Ullarnærföt, föt til skiptana, hlýja sokka. Innifalið: Allur sérhæfður búnaðir til köfunar og leiðsögn. Vinsamlegast athugið að það er skylda að haf lokiuð PADI open water eða sambærilegu námskeiði, við mælum samt með að ljúka einnig PADI advanced og hafa lokið þurrgalla námskeiði.
Click here for English