Karfa
Heildarverð viðskipta 0 ISK
0,00 EUR
0,00 USD
Bookmark and Share

Klettaklifur í Valshamri í Hvalfirði

Klettaklifur í Eilífsdal í Hvalfirði.
Erfiðleikastig ferðar er 1 til 3 af 5 mögulegum.

Hér gefst þér færi á að reyna fyrir þér í klettaklifri. Að príla upp lóðrétta hamra og fjölbreytta kletta með einungis styrk þinn og útsjónarsemi til hjálpar...Og auðvitað sérþjálfaða leiðsögumenn og öryggislínur! Línan sér til þess að þó þér fatist flugið þá sakar það ekki og þú færð aftur tækifæri til að klifra upp. Tilvalið sem hálfsdagsferð fyrir fjölskyldur og minni hópa. Þetta er skemmtileg og öðruvísi ferð sem býður upp á fallegt umhverfi og ævintýri í næsta nágrenni við Reykjavík.

Smáatriði:

Verð:  15.990 kr. án akstur. 19.990 kr. með akstri frá Reykjavík og tilbaka.
Í boði: 15. júní til 15. september (Ath. háð veðri).
Fjarlægð frá Reykjavík: 50 km.
Lengd ferðar: 3 - 5 klst.
Lágmark: 4 þátttakendur. Hámark 10 þátttakendur.
Aldurstakmark: 12 ár.
Þátttakendur verða að taka með sér: hlýjan útivistarfatnað, vatnsheldan jakka og buxur og hlýja peysu.
Fyrri reynsla af klettaklifri er ekki nauðsynleg.
Hægt er að bæta nesti við þessa verð fyrir 1.500 kr.
 
Fyrirvari: Allar klifurferðir eru farnar á ábyrgð þátttakenda í henni. Arctic Rafting tekur sér ekki á herðar neina ábyrgð vegna slysa sem verða vegna háttarlags eða hátternis þátttakenda í ferðinnni eða vegna annarra aðstæðna sem rekja má til þeirra eigin gjörða. Þátttakendur kunna að þurfa að skrifa undir yfirlýsingu þess efnis en að öðrum kosti teljast kaup og þátttaka í ferðinni nægilegur vottur þess efnis að þátttakendur geri sér grein fyrir því að öllum ævintýraferðum og allri útivist fylgir ákveðin áhætta sem þátttakendur taka sér á hendur með þátttöku.
 
ATH.
Sértu í leit að adrenalíni þarftu ekki að leita lengra. Arctic Rafting getur sérhannað fyrir þig og þína klifur á hvaða erfiðleikastigi sem er, hvar sem aðstæður leyfa á landinu. Sendu okkur línu eða sláðu á þráðinn og við hjálpum þér að vinna úr hugmyndum þínum.
Click here for English