Hér gefst þér færi á að reyna fyrir þér í klettaklifri. Að príla upp lóðrétta hamra og fjölbreytta kletta með einungis styrk þinn og útsjónarsemi til hjálpar...Og auðvitað sérþjálfaða leiðsögumenn og öryggislínur! Línan sér til þess að þó þér fatist flugið þá sakar það ekki og þú færð aftur tækifæri til að klifra upp. Tilvalið sem hálfsdagsferð fyrir fjölskyldur og minni hópa. Þetta er skemmtileg og öðruvísi ferð sem býður upp á fallegt umhverfi og ævintýri í Skaftafelli.
Öruggar brottfarir: alla daga fyrir minnst 4 þátttakendur frá 15.maí til 15. september.
Smáatriði:
Verð: 16.990 kr á mann
Innifalið: akstur frá Skaftafelli, leiðsögn og allur klifurbúnaður.
Lengd ferðar: 4-5 klst.
Vinsamlegast athugið: ferðin er háð veðri og aðstæðum.
Lágmarksþátttaka: 4 þátttakendur.
Aldurstakmark: 12 ára.
Við bjóðum upp á prívat klifurferðir fyrir fjölskylduna ef óskað er eftir því.
Takið með ykkur: Hlý útvistarföt, vatnsheldar buxur og jakka.
Erfiðleikastig: Þið getið valið hversu krefjandi klifur þið viljið. Ekki er nauðsynlegt að hafa fyrri reynslu af klettaklifri.
Smellið hér fyrir afbókunarstefnu okkar.
Fyrirvari: Allar klifurferðir eru farnar á ábyrgð þátttakenda í henni. Arctic Rafting tekur sér ekki á herðar neina ábyrgð vegna slysa sem verða vegna háttarlags eða hátternis þátttakenda í ferðinnni eða vegna annarra aðstæðna sem rekja má til þeirra eigin gjörða. Þátttakendur kunna að þurfa að skrifa undir yfirlýsingu þess efnis en að öðrum kosti teljast kaup og þátttaka í ferðinni nægilegur vottur þess efnis að þátttakendur geri sér grein fyrir því að öllum ævintýraferðum og allri útivist fylgir ákveðin áhætta sem þátttakendur taka sér á hendur með þátttöku.
Click here for English