Arctic Rafting býður upp á klifurferðir í Valshamri í Hvalfirði og á Hnappavöllum frá Skaftafelli.
Vertical Walls: Smelltu
hér til að kynna þér öðruvísi og ögrandi klifurferð í hálftíma fjarlægð frá Reykjavík.
Hnappavellir: Smelltu
hér til að kynna þér klifurferð á stærsta og besta sportklifursvæði á Íslandi.
Hvað er klettaklifur?
Þátttakendur klæða sig í sérstakt öryggisbelti sem tengir þá við öryggislínu sem leiðsögumaður stjórnar. Þannig fá allir að reyna að klifra upp þverhníptan klettavegg án þess að nokkur hætta sé á ferðum. Ef þátttakandi missir gripið þá dettur hann ekki nema örfáa sentimetra og fær annað tækifæri til að komast á toppinn.
Smáatriði:
Fyrri reynsla af klettaklifri er ekki nauðsynleg.
Þáttakendur verða að taka með sér: hlýjan útivistarfatnað, vatnsheldan jakka og buxur og hlýja peysu.
ATH
Sértu í leit að adrenalíni þarftu ekki að leita lengra. Arctic Rafting getur sérhannað fyrir þig og þína klettaklifur af hvaða erfiðleikastigi sem er, hvar sem aðstæður leyfa á landinu. Sendu okkur línu eða sláðu á þráðinn og við hjálpum þér að vinna úr hugmyndum þínum.
Click here for English