Kanóferð á Hvítá neðan við Gullfoss Erfiðleikastig 3+ af 5 mögulegum. Kanóferðir eru tiltölulega ný tegund afþreyingar á Íslandi. Kanóarnir eru uppblásnir og losa sig sjálfir af vatni (svo að þeir sökkva ekki þó þeir velti). Fyrri reynsla af slíkum siglingum er því ekki nauðsynleg. Tveir til þrír sitja saman í hverjum bát og stýra honum niður flottar flúðir á Hvítá í klukkutíma fjarlægð frá Reykjavík. Silgdir eru 7 kílómetrar gegnum falleg gljúfur og margvíslegar flúðir og stoppað í Brúarhlöðum þar sem hægt er að fleygja sér fram af klettum ofan í ánna. Leiðsögumenn á raft eða kajak fylgjast með framgangi mála skammt frá en grípa ekki inn í nema virkilega sé þörf, hér á maður að redda sér sjálfur.
Við mælum með þessari ferð fyrir fólk í góðu líkamlegu ástandi sem vill fá ríka upplifun af náttúrunni, flúðunum og eigin getu!
Öruggar brottfarir fyrir minnst 2 þátttakendur alla daga kl. 8:00 og 12:00 frá Fjallakofanum á Laugavegi 11, kl. 10:00 og 14:00 frá Drumboddstöðum ef hist er á staðnum. Þetta gildir fyrir tímabilið 15. maí til og með 15. september. Fyrir minnst 4 þátttakendur alla daga kl. 12:00 frá Fjallakofanum og 14:00 frá Drumboddsstöðum frá 15. aprí - 14. maí og 16. september til 1. október.
Smáatriði: Verð: 9.990 kr á mann án aksturs frá Reykjavík.
Innifalið er kanósigling niður Hvíta, heitar sturtur og sauna eftir siglinguna. 13.490 kr á mann með brottför kl. 8:00 frá Reykjavík og hádegisverðarhlaðborði.
Innifalið er kanósigling niður Hvítá, akstur til og frá Reykjavík og hádegisverðahlaðborð. 14.490 kr á mann með brottför kl. 12:00 frá Reykjavík og grillveislu.
Innifalið er kanósigling niður Hvítá, akstur til og frá Reykjavík og grillveisla. Pick–up frá Reykjavík og flestum gististöðum á Suðurlandi er í boði sé þess óskað.
Tímabil: frá apríl til október (Ath. háð veðri).
Fjarlægð frá Reykjavík: 100 km.
Lengd ferðar: 3 klst. án aksturs frá Reykjavík. 7 klst. með akstri fram og tilbaka frá Reykjavík.
Lámark: 2 þátttakendur frá 15. maí til 15. september. 4 þátttakendur 15. apríl - 14. maí og 16. september - 1. október. Hámark: 14.
Aldurstakmark: 18 ár.
Þátttakendur verða að taka með sér: handklæði, föt til skiptana, sundföt og hlýja peysu (flís/ull) sem mun líklega blotna.
Fyrir þá sem koma sjálfir á Drumboddsstaði er hægt að bæta hádegisverðarhlaðborði við fyrir 1.450 kr.
Höfuðstöðvar: Drumboddsstaðir (Drumbó), Biskupstungum, rúmlega klukkustund frá RVK.
Kort af leiðinni á Drumbó. Mikilvægar upplýsingar um ferðir á Hvítá. Ath: Ferðin hentar einnig sérlega vel fyrir þá sem silgt hafa Hvítá eða sambærilegt fljót áður í raft og vilja prófa eitthvað nýtt og spennandi.
Ath: Ef einhverjir innan hóps kjósa að fara í flúðasiglingu og aðrir í kanósiglingu þarf einungis að láta okkur vita fyrirfram.
Hvað er kanó? Kanó er uppblásinn tveggja manna bátur með tveimur þóftum. Hann er sérstaklega búinn uppblásnu gólfi og losar sjálfan sig af vatni. Honum er róið áfram af tveimur farþegum. Kanó er mun minni er raft-bátur og fer því dýpra í öldur og holur, þ.e. flúðir stækka og adrenalín flæðir í ríkara mæli um æðar ferðalanga.
Samningsákvæði: Allar flúðasiglingarnar eru farnar á ábyrgð þátttakenda í hana. Arctic Adventures ber ekki á nokkurn hátt ábyrgð vegna slysa sem rekja mega til gáleysis eða grandaleysis þátttakenda eða ekki er hægt að rekja með beinum hætti til stórkostlegs gáleysis eða ásetnings starfsmanna fyrirtækisins. Þátttakendum kann að vera gert að skrifa undir ábyrgðaryfirlýsingu þess efnis, neitun á slíkri undirskrift fyrirgerir þátttakanda rétt til ferðar. Þrátt fyrir að ekki sé sérstaklega undirrituð slík yfirlýsing gildir fyrirvari þessi vegna allra ferða sem bókaðar eru hjá Arctic Adventures. Með kaupum og/eða þátttöku í ferðum á vegum fyrirtækisins hafa þátttakendur staðfest að þeir gera sér grein fyrir þeirri áhættu sem fylgir slíkum ferðum og að þeir eru á eigin ábyrgð.
Click here for English