Mjög skemmtileg og gríðarlega falleg ganga á eitt formfegursta og sögufrægasta fjall landsins.
Erfiðleikastig ferðar 3+ af 5 mögulegum. Frekar krefjandi.
Hæð: 1446 metrar.
Snæfellsjökull er ægifagurt eldfjall vestast á Snæfellsnesi. Fjallið er nær fullkomin keila að lögun þar sem það rís frá sjávarmáli og upp í 1450 m hæð. Greinilega sést hvernig þykk hraun hafa runnið niður hlíðar fjallsins. Langt er þó síðan fjallið gaus síðast eða um 1800 ár. Fegurð þess hefur orðið mörgu skáldinu yrkisefni og meðal stórra verka sem tengjast fjallinu má nefna skáldsögu franska rithöfundarins Jules Verne, "Journey to the Center of the Earth", sem fræg er orðin. Ferð á Snæfellsjökul er ógleymanlegt ævintýri og jafnvel hörðustu efasemdamenn eiga erfitt með að bera á móti sögunum sem fara af miklu orkuflæði frá jöklinum. Á björtum dögum er mjög víðsýnt af jöklinum, Snæfellsnesið blasir við í allri sinni dýrð, Faxaflóinn í suðri, Breiðafjörðurinn í norðri og Vestfjarðarkjálkinn handan hans. Í stuttu máli er ganga á Snæfellsjökul dagsferð í algjörum heimsklassa og er lítil hætta á að slík för gleymist nokkunr tíman, heldur lifi í minningabankanum um aldur og ævi.
Landslag: Í byrjun ferðar er gengið um hraun og vikurbrekkur þar til komið er upp í snjó. Í um 900 m hæð tekur jökullinn við með allmörgum jökulsprungum sem eru huldar snjó fram eftir sumri. Þátttakendur ganga því í línu með leiðsögumanni og hafa meðferðis nauðsynlegan jöklabúnað. Snæfellsjökull bíður upp á fyririrtaks skíðaleiðir á vorin.
Meðal uppgöngutími: 3-5 klst.
Meðal heildarlengd ferðar: 5-7 klst ganga. (U.þ.b. 12 tímar frá Reykjavík og til baka).
Hækkun: ~1100 metrar.
Þessi ferð á sér staðfestar brottfarir á sunnudögum kl. 8:00 fyrir minnst 2 þátttakendur, aðra daga fyrir minnst 4 þátttakendur. Þetta gildir fyrir tímabilið 1. maí til 15. september.
Gagnlegar upplýsingar:
Verð: 27.990 kr á mann.
Innifalið: leiðsögn, akstur fram og til baka frá Reykjavík og nesti.
Tímabil: ferðin er í boði frá maí og fram í september (með fyrirvara um veður og snjóalög).
Fjarlægð frá Reykjavík: U.þ.b. 180 km.
Lengd ferðar frá Reykjavík: U.þ.b. 12 klst allt í allt. 5-7 klst. á göngu.
Aldurstakmark: 16 ár.
Lágmarksfjöldi: 2 þátttakendur á völdum dögum, annars 4 þátttakendur. Hámarksfjöldi: 60
Við áskiljum okkur rétt til þess að fresta eða aflýsa ferðum ef við metum veður eða aðrar óviðráðanlegar aðstæður þannig að ekki sé unnt að framkvæma ferðina á öruggan hátt. Vinsamlegast kynnið ykkur
útbúnaðarlistann fyrir þessa ferð til að vera viss um að hafa allan nauðsynlegan búnað meðferðis í ferðina.
Bókanir og nánari upplýsingar í síma
571-2100.
Samningsákvæði: Allir þátttakendur í ferðum á vegum Arctic Adventures, þ.m.t. jöklaferðum, eru á eigin ábyrgð. Arctic Adventures ber ekki á nokkurn hátt ábyrgð vegna slysa sem rekja má til gáleysis eða grandaleysis þátttakenda eða ekki er hægt að rekja með beinum hætti til stórkostlegs gáleysis eða ásetnings starfsmanna fyrirtækisins. Þátttakendum kann að vera gert að skrifa undir ábyrgðaryfirlýsingu þess efnis, neitun á slíkri undirskrift fyrirgerir þátttakanda rétt til ferðar. Þrátt fyrir að ekki sé sérstaklega undirrituð slík yfirlýsing gildir fyrirvari þessi vegna allra ferða sem bókaðar eru hjá Arctic Adventures. Með kaupum og/eða þátttöku í ferðum á vegum fyrirtækisins hafa þátttakendur staðfest að þeir gera sér grein fyrir þeirri áhættu sem fylgir slíkum ferðum og að þeir eru á eigin ábyrgð. Click here for English