Jöklaganga á Sólheimajökli - Hvataferð
Erfiðleikastig: 2 af 5 mögulegum
Langar þig í könnunarleiðangur á jökli? Þessi tiltekna ferð fer með þig um sporð Sólheimajökuls sem er skriðjökull af Mýrdalsjökli. Umhverfið er öðrum heimi líkast, gróft og hrátt landslagið með síbreytilegum ísnum. Gangið um jökulinn og kannið töfrandi umhverfið og verið vitni af því hvernig jökullinn breytist. Við úvegum þann búnað sem til þarf: ísaxir, mannbrodda og öryggislínur.
Smáatriði:
Verð: 6.990 kr. á mann.
Innifalið: ganga á Sólheimajökli og allur nauðsynlegur jöklaútbúnaður (broddar o.fl.).
Vegalengd frá Reykjavík: 150 km.
Lengd ferðar: um það bil 2,5 klst. með undirbúningi og 1,5 klst. á ís.
Í boði: Allt árið (fer eftir veðri).
Lágmarksþátttaka: 10 þátttakendur. Hámarksþátttaka: 100 þátttakendur.
Aldurstakmark: 12 ára.
Takið með ykkur: Hlý útivistaföt, vatnsheldan jakka og buxur. Mælt er með að koma með góða gönguskó! Engrar reynslu er krafist.
Hægt er að bæta við nesti fyrir 1.500 ISK á manninn.
Smellið hér fyrir afbókunarstefnu okkar
Fyrirvari: Allar jöklaferðir eru farnar á ábyrgð þátttakenda í henni. Arctic Rafting tekur sér ekki á herðar neina ábyrgð vegna slysa sem verða vegna háttarlags eða hátternis þátttakenda í ferðinnni eða vegna annarra aðstæðna sem rekja má til þeirra eigin gjörða. Þátttakendur kunna að þurfa að skrifa undir yfirlýsingu þess efnis en að öðrum kosti teljast kaup og þátttaka í ferðinni nægilegur vottur þess efnis að þátttakendur geri sér grein fyrir því að öllum ævintýraferðum og allri útivist fylgir ákveðin áhætta sem þátttakendur taka sér á hendur með þátttöku.
Click here for English